ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.9° 6m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Tvö andlit Samfylkingarinnar

23:08 › 11. desember 2008

Forysta Samfylkingarinnar virðist hafa sagt fjölmiðlum,  Alþingi og jafnvel þorra almennings stríð á hendur um túlkun  á þeim veruleika sem þjóðin stendur frammi fyrir eftir bankahrunið.
Tökum nokkur dæmi.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sat undir gagnrýni þess hluta þjóðarinnar sem komst fyrir í Háskólabíói og anddyri þess 24. nóvember síðastliðinn. Hún setti ofan í við fundargesti er þeir notuðu um sig orðið „þjóð“. Enginn gæti talað í nafni þjóðarinnar. Sérhver maður gæti aðeins talað fyrir sjálfan sig.
Þessi ummæli hennar voru ef til vill ekki röng en óheppileg og gáfu tilefni til hártogana.


Glæpur að vita ekki
Björgvin G. Sigurðsson, bankamálaráðherra, svarar spurningum stjórnarandstöðunnar á Alþingi, nú síðast í gær,  meðal annars um samskipti sín við bresk stjórnvöld og Fjármálaeftirlitið og viðvaranir þar til bærra manna og stofnana við aðsteðjandi vanda bankakerfisins.
Björgvin keppist við að segja þingheimi, fjölmiðlum og kjósendum að allt sé í slétt og fellt. Enginn misskilningur, allir vinni verk sín vel, enginn hafi getað sér fyrir ósköpin sem yfir dundu. Björgvin vill rannsaka allt og velta við hverjum steini , en segir það eins og hann sé ekki meðal grunaðra heldur í liði hinna saklausu.
Nei, hann bankamálaráðherrann hafi ekkert vitað og ekkert fylgst  með fyrstu þrjá daga bankahrunsins. En jú, hann og Samfylkingin beri ábyrgð á Davíð Oddssyni í Seðlabankanum. 
Björgvin vill ekkert af því vita, að einmitt þetta,  að bankamálaráðherra þjóðar veit ekkert og er ekki hafður með í ráðum þegar bankakerfi hrynur, er í sjálfu  sér rík ástæða til þess að segja af sér embætti. Fara út í fússi og sýna heilindi og gott fordæmi fyrir framtíðarstjórnmál hins nýja Íslands.


Fóstran og óvitarnir


Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, sagði á Alþingi í gær, að megin ástæðan fyrir því hvernig komið væri lægi hjá bönkunum sjálfum. „Það voru þeir sem keyrðu okkur út af veginum,“ sagði Ágúst Ólafur og bætti við, að þótt svo að menn yrðu að lúta reglum bæri lögreglan ekki ábyrg á hraðakstri.
Vera má að Ágúst Ólafur sé orðinn  þreyttur á stöðugri gagnrýni almennings á mótmælafundum, í fjölmiðlum og á Alþingi.  En hann má ekki verða afundinn af þeim sökum og koma sök á aðra eins og börn gera oft.  Árni Þór Sigurðsson, VG, benti Ágústi Ólafi á það á Alþingi í gær að líta á lög um ráðherraábyrgð sem hvíla á 14. grein stjórnarskrárinnar. Í tíundu grein laga um ráðherraábyrgð frá 1963 segir að ráðherra sé  sekur ef „hann framkvæmir nokkuð eða veldur því að framkvæmt sé nokkuð, er stofnar heill ríkisins í fyrirsjáanlega hættu, þótt ekki sé framkvæmd þessi sérstaklega bönnuð í lögum, svo og ef hann lætur farast fyrir að framkvæma nokkuð það, er afstýrt gat slíkri hættu, eða veldur því, að slík framkvæmd ferst fyrir.”


Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, hélt um Samfylkingarstjórnvölinn innan ríkisstjórnarinnar þegar lögð voru drög að þjóðnýtingu Glitnis án vitundar Björgvins í lok september. Ingibjörg Sólrún var fjarverandi á erlendri grundu vegna veikinda.
Fengu ráðherrar Samfylkingarinnar ekkert að vita dagana fyrir 29. september? Ekki heldur Össur?
Nú hefur Össur upplýst að hann hafi leynilega fært til bókar innan ríkisstjórnarinnar að Davíð Oddsson starfi ekki á sína ábyrgð í Seðlabanka Íslands. Björgvin segir opinberlega að Samfylkingin beri ábyrgð á veru Davíðs í bankanum.
Væri ekki ágætt að þeir vopnabræður Össur og Björgvin kæmu sér saman um hvað rétt er og satt í þessu efni?


Kemur bráðum betri tíð?
Loks er það þáttur Lúðvíks Bergvinssonar þingflokksformanns Samfylkingarinnar. Efnislega notaði hann tíma sinn gegn Atla Gíslasyni, VG, í Kastljósi í fyrrakvöld til þess að réttlæta verklag ríkisstjórnarinnar. Þótt kannski væri einhver vanhæfur, KPMG að rannsaka sjálft sig,  ynnu samt allir dag og nótt við að koma íslenska hagkerfinu á réttan kjöl.

Eitthvað er gamalkunnugt við alla þessa nálgun Samfylkingarinnar. Eins og draugagangur úr fortíðinni. Hvenær ætlar Samfylkingin að kasta fyrir björg því seigfljótandi valdakerfi sem hún gagnrýndi svo ákaft í stjórnarandstöðu? 

(Kjallaragrein í DV 11. desember 2008)



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?