Fyrir margt löngu vann ég 4 til 5 ár meðfram námi við endurhæfingu drykkjusjúklinga og fíkniefnaneytenda. Það var afar dýrmæt reynsla.
Yfirlæknirinn sagði eitt sinn í fyrirlestri yfir vistmönnum að togaraskipstjórar hefðu síður en svo haft á móti því að ráða drykkjumenn í pláss hjá sér. Venjulega rann af þeim á leiðinni á miðin.
Ástæðan var einföld sagði læknirinn: „Þeir eru reknir áfram af sektarkennd og eru því vinnusamari og ósérhlífnari en aðrir sjómenn.“
Þetta rifjaðist upp fyrir mér þegar ég horfði á ráðherrana Geir H. Haarde, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Árna Mathiesen á blaðamannafundi í þinghúsinu í morgun.
Kannski er gott að hafa þau við stjórnvölinn. Þau eru rekin áfram af sektarkennd. Eru helmingi vinnusamari fyrir vikið.
Sektarkenndin er afl þeirra hluta sem gera þarf ! :-)
Blogg
Afl sektarkenndarinnar
11:21 › 11. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
