ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 13.5° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Alltaf á vaktinni fyrir þjóðina

23:37 › 9. nóvember 2008

Nú er Jónas Friðrik Jónsson forstjóri Fjármálaeftirlitsins vaknaður af þyrnirósarsvefni og segir þjóðinni að hann sé alltaf á vaktinni. Hafi ekki getað komið í veg fyrir að Icesave reikningar Lansbankans kölluðu hörmungar yfir þjóðina. Hann tali sjaldan við Björgvin G. enda megi ráðherrann vita hvernig ástandið sé.

Þeir í Seðlabankanum eru líka alltaf á vaktinni. Tóku samt ekki hundruð milljarða lán frá Morgan bankanum í mars / apríl sem stóð honum til boða. Kannski stóð aldrei til að vera íslenskum bönkum lánveitandi til þrautavara. Undirmálskreppa búin að grassera á Vesturlöndum í hálft ár eða meira á þessum tíma og farið að tregast um millibankalán.
"Þú mátt vita það Sigurður minn, að ef þú ætlar að vera með kjafthátt og krefjast þess að fá að reka Kaupþing í evrum er mér að mæta. Ég knéset ykkur með einu vinki," gæti Davíð Oddsson seðlabankastjóri hafa sagt við Sigurð Einarsson í partýinu í eftir aðalfund IMF í BNA í fyrra. Hann tók líka kast í annarri veislu miklu fyrr eins og Matthías ritstjóri segir frá í dagbókum sínum á www.matthias.is .


Það er gott að Davíð Oddsson og Jónas Friðrik Jónsson, Geir H. Haarde og Björgvin G. Sigurðsson standa vaktina fyrir fjöldann.

Því miður fyrir þá er bankakerfið hrunið - hafi það farið framhjá þeim.  Íbúðaverð fellur eins og steinn, fyrirtæki fara á hausinn, atvinnulausir verða 10 þúsund eftir nokkrar vikur, gjaldeyrismálin í ólestri fimm vikum eftir hrun bankanna og óvissa um erlendar lántökur til að koma á stöðugleika.

Munið töfraorð síðustu ára: STÖÐUGLEIKI !

Það vekur alveg sérstaka öryggiskennd borgaranna að Jónas Fr., Davíð, Geir og Björgvin skuli standa vaktina. Fjöldinn kemur saman á Austurvelli á laugardögum til þess að hylla þessa foringja sína. Aðdáun þeirra vex með viku hverri enda fjölgar alltaf á Austurvelli. Sýna þar húsbóndavaldi og föðurlegri umhyggju hollustu sína og undirgefni.

Þeir standa vaktina fyrir okkur.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?