Kjósendur og fulltrúar þeirra á Alþingi ráða yfir tveimur eftirlitsstofnunum. Þær eiga ekki að vera undir hæl framkvæmdavaldsins, ríkisstjórnarinnar, heldur fylgjast með gerðum og útgjöldum framkvæmdavaldsins (Ríkisendurskoðun) og verja hagsmuni og rétt almennings gagnvart stjórnvaldinu (Umboðsmaður Alþingis).
Stundum finnst mér eins og það þurfi að hafa eftirlit með þessum fábrotnu eftirlitsstofnunum almennings.
Dæmi:
Ívar Páll Jónsson, sonur Jóns Steinars Gunnlaugssonar hæstaréttardómara, ritaði merkilega grein í Morgunblaðið 25. janúar 2008, liðlega mánuðið eftir að Árni Mathiesen, fjármálaráðherra hafði skipað Þorstein, son Davíðs Oddssonar, í embætti héraðsdómara. Greininni var ætlað að styðja embættisveitingu Árna Mathiesen. Saman tekið má hafa efirfarandi fróðleik úr grein Ívars Páls:
1) Sjálfstæðismaðurinn Árni Mathiesen fjármálaráðherra og staðgengill flokksbróður síns Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra skipar Þorstein Davíðsson í stöðu héraðsdómara.
2) Þorsteinn Davíðsson er sonur Davíðs Oddssonar, fyrrum formanns Sjálfstæðisflokksins, forsætisráðherra og síðar seðlabankastjóra .
3) Umsækjendur, sem metnir eru mun hæfari en Þorsteinn, gera formlegar athugasemdir og skjóta máli sínu til umboðsmanns Alþingis. Pétur Kr. Hafstein, Sjálfstæðisflokki og formaður dómnefndar sem metur hæfni umsækjendanna, gerir einnig formlegar athugasemdir við stöðuveitinguna.
4) Pétur Kr. er sonur Jóhanns Hafstein, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins og ráðherra.
5) Ívar Páll Jónsson, Sjálfstæðisflokki og einn af útvörðum ungra frjálshyggjumanna, segir frá því hvernig dómsmálaráðherrann Friðjón Þórðarson, Sjálfstæðisflokki, skipaði formannssoninn Pétur Kr. Hafstein sýslumann í Ísafjarðarsýslu 1983 og tók hann fram fyrir reyndari umsækjendur.
6) Ívar Páll greinir loks frá því hvernig Þorsteinn Pálsson, Sjálfstæðisflokki, skipar Pétur Kr. hæstaréttardómara árið 1991.
7) Ívar Pál ber að skilja á þann veg að þar hafi Þorsteinn Pálsson verið að umbuna Pétri Kr. og þakka honum stuðninginn við sig gegn Davíð í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins árið 1991.
Við þetta má bæta eftirfarandi:
9) Geir H. Haarde, Sjálfstæðisflokki, skipaði Jón Steinar, góðvin Davíðs Oddssonar, í embætti hæstaréttardómara 29. september árið 2004 en Geir var þá fjármálaráðherra. Grunsemdir og opinber umfjöllun um að Jón Steinar hafi verið ráðinn á forsendum kunningjaveldis munu um langa hríð loða við hann með réttu eða röngu. Það á líka við um Ólaf Börk Þorvaldsson, frænda Davíðs Oddssonar, sem Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, skipaði hæstaréttardómara 1. september 2003. Ákvörðun Björns þótti geðþóttaleg og sætti gagnrýni. Einn umsækjendanna, Hjördís Hákonardóttir, skaut málinu til kærunefndar um jafnréttismál. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að Björn Bjarnason hefði brotið jafnréttislög með því að skipa Ólaf Börk. Í raun varð ríkið að greiða Hjördísi bætur fyrir embættisglöp Björns með því að semja við hana um ársleyfi á launum síðla árs 2005. Vorið 2006 neyddist Björn til þess að víkja sæti þegar Hjördís sótti enn á ný um embætti hæstaréttardómara. Í það skipti kom í hlut Geirs H. Haarde, setts dómsmálaráðherra, að skipa Hjördísi í embætti dómara við hæstarétt.
Spurningin mín er þessi: Hvað líður afgreiðslu Umboðsmanns Alþingis á erindi tveggja lögmanna sem kvörtuðu til embættisins yfir skipan Árna Mathiesen á Þorsteini Davíðssyni í embætti héraðsdómara fyrir meira en tíu mánuðum?
Þarf einhver að hafa eftirlit með EFTIRLITINU?



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
