ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 13.5° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Samfylkingunni ráðlagt

12:57 › 5. nóvember 2008

Sjálfstæðisflokkuninn, sem verið hefur við völd undanfarin 17 til 18 ár - og 80 prósent lýðveldistímans ef út í það er farið - kann hernaðarlist sem aðrir flokkar kunna ekki. Í krafti valdasetunnar hefur Flokkurinn auk þess komið sér upp valdamiklum lykilmönnum í öllu stjórnkerfinu.

Nú glímir Sjálfstæðisflokkurinn við sinn mesta vanda í lýðveldissögunni sem gæti endað með klofningi í afturhaldssaman og þjóðernissinnaðan Heimastjórnarflokk og frjálslyndan Evrópuflokk.

Einmitt vegna reynslu sinnar og hernaðarlistar yfirspilar Sjálfstæðisflokkurin nú alla aðra flokka á örlagatímum, jafnvel þótt hann beri sjálfur mesta ábyrgð á hruni efnahagslífsins.

Forystan fer sér hægt og stillir sig um að gagnrýna Samfylkinguna. Sem væri þó leikandi hægt. Hún gæti jagast í Björgvin G. Sigurðssyni bankamálaráðherra og yfirmanni Fjármálaeftirlitsins. Hún gæti beint spjótum að Jóni Sigurðssyni stjórnarformanni Fjármálaeftirlitsins. Forystan kann  „the name of the game“ og veit áreiðanlega eitthvað misjafnt um það sem er að gerast bak við tjöldin og snýr að Samfylkingunni.

Geir H. Haarde telur sem sagt ekki skynsamlegt á þessari stundu að djöflast í samstarfsflokknum. Hann stillir sig um það á kerfisbundinn hátt. Þannig ræður hann ferðinni og allir vita að það passar Sjálfstæðisflokknum illa að slíta stjórnarsamtarfinu og fara í kosningar.

Allir vita að óþolið gagnvart stjórnarsamstarfinu er meira innan Samfylkingarinnar.
Við þessar aðstæður er auðvelt og sjálfsagt að veita Samfylkingunni holl ráð:

1) Ef Samfylkingin vill hætta í stjórnarsamstarfinu verður hún að finna eitthvað annað og stærra mál en Davíð Oddsson til að rjúfa samstarfið.

2) Ef Samfylkingin vill EKKI hætta stjórnarsamstarfinu ætti hún að láta af gagnslitlum smáskærum gagnvart Sjálfstæðisflokknum og Davíð Oddssyni.  Æ fleira bendir til þess að raunin sé sú að Samfylkingin vilji ekki slíta samstarfinu við Sjáflstæðisflokkinn. Og því verður hún að láta af daglegri gagnrýni á samstarfsflokkinn og bankastjórn Seðlabankans, sem starfar í skjóli Geirs. Sjálfstæðisflokkurinn hefur reynsluna, lykilmennina, embættiskerfið, hernaðarlistina og þolinmæðina til þess að viðhalda valdakerfi sínu. Samfylkingin virðist ekkert hafa í þetta að gera. Örlög hennar verða því á endanum þau sömu og Framsóknarflokksins eftir 12 ára setu í ríkisstjórn með Davíð.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?