Stjórnarandstaðan er smám saman að ná vopnum sínum. Heyrðist best í þinginu í dag. Hún þjarmar hægt og rólega að óreiðumönnum og ósannindamönnum í ríkisstjórninni.
Hvar er rannsóknin á bankahruninu Geir? Ætlar þú og Samfylkingin bara að rannsaka ykkur sjálf?
Eiga feður að fá að rannsaka syni sína í bönkunum og útrásarfélögum?
Hvar eru loforðin um að afnám sérréttindalaganna um eftirlaun ráðherra, dómara og forseta?
Geir, Af hverju léstu ekki þjóðina vita af hringjandi viðvörunarbjöllum sem þú ræddir við Gordon Brown í apríl síðastliðnum?
Hvernig er það: Ætla stjórnarflokkarnir að láta það viðgangast að allir einkareknir fjölmiðlar verði á einni hendi?
Og eiga hátt settir bankahrunsmenn að fá að strika út skuldir sínar? Hvað með okkur hin? Fáum við það líka?
Er Björgvin bankamálaráðherra flúinn þegar mest á ríður? Sést ekki í þinginu?
Ætlar Björgvin og Geir að láta menn úr gömlu bönkunum sitja við papírstætarana í nýju ríkisbönkunum?
Hvað á þjóðin að vera lengi að athlægi í útlöndum vegna bankastjórnar Seðlabankans?
Hversu lengi ætlar Geir að verja Davíð, skrökva um bókanir í ríkisstjórninni og þusa um leka úr henni?
Og svo framvegis?
Sjálfstæðisflokkurinn er að hrynja inn í sig eins og Sovétið forðum og ætlar að taka þjóðina með sér í fallinu.
Samfylkingin misskilur hlutverk sitt, skynjar ekki kall tímans og ætlar að sökkva með. Hún á marga leiki en notar engann þeirra. Notar sama orðfæri og seigfljótandi valdakerfi Sjálfstæðisflokksins: „Við erum ábyrg og megum ekki stofna neinu í voða, til dæmis með kosningum?“
Hvaða voði er meiri en sá sem kallaður hefur verið yfir þjóðina í valdatíð Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins?
Blogg
ÓREIÐA Í RÍKISSTJÓRNINNI
17:12 › 4. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
