ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 13.5° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Hvaða bruðl er þetta?

16:38 › 3. nóvember 2008

Eftirfarandi tilkynningu er að finna á vef stjórnarráðsins:


31.10.2008


Björn Rúnar Guðmundsson, hagfræðingur, hefur í dag verið settur skrifstofustjóri á nýrri efnahags- og alþjóðafjármálaskrifstofu forsætisráðuneytisins frá 1. nóvember til 31. ágúst 2009.


Björn Rúnar er hagfræðingur að mennt og hefur starfað á Þjóðhagsstofnun, í fjármálaráðuneytinu og nú síðast í greiningardeild Landsbanka Íslands.


Spyrja má: Er þessi nýja skrifstofa einhvers konar ígildi Þjóðhagsstofnunar forðum? Er ekki svipuð skrifstofa rekin inni í fjármálaráðuneytinu? Er gert ráð fyrir þessum útgjöldum á fjárlögum?
Er þetta ekki bara bruðl á þessum síðustu og verstu tímum?

Alþingi hlýtur að taka á þessu á tímum sparnaðar og ráðdeildarsemi.










ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?