ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 13.5° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

RÚV og byltingin

20:16 › 27. nóvember 2008

Í mannvísindum virðist ómögulegt að setja fram algild lögmál. Samt má reyna:  Þegar hópur öðlast forréttindi  af einhverjum toga lætur hann þessi  sömu forréttindi aldrei af hendi átakalaust.


Þetta hljómar sannfærandi.  Karlar láta ekki forréttindi sín ekki átakalaust af hendi gagnvart konum. Ríkir láta ekki forréttindi sín átakalaust af hendi gagnvart fátækum og svo framvegis.


Stundum verja menn forréttindi sín í krafti stöðu sinnar, auðs eða ættar.  Stundum ná menn tökum á ríkisvaldinu á ólýðræðislegan hátt og setja lög sem ívilna sumum en grafa undan tilveru annarra.  Sums staðar skerst í odda og átökin verða blóðug. Engin hefð er fyrir slíku hér á landi á síðari öldum. Sem betur fer.


Sérfræðingar í stjórnmálum Suður Ameríku settu eitt sinn fram ígrundaða staðhæfingu sem hljómaði eins og algilt lögmál: Þegar saman fer efnahagskreppa  og þverrandi stuðningur hersins við ríkjandi stjórnvöld verður bylting.


 


Fjölmiðlar gegn ríkisstjórn


Nú væri freistandi að breyta þessari tilgátu örlítið og laga hana að íslenskum aðstæðum í samtímanum: Þegar saman fer efnahagskreppa á Íslandi og þverrandi stuðningur fjölmiðla við ríkjandi stjórnvöld verður bylting.


Bylting er stórt orð og því best  að milda tilgátuna: Þegar saman fer efnahagskreppa á Íslandi og þverrandi stuðningur fjölmiðla við ríkjandi stjórnvöld segir ríkisstjórnin af sér og boðar til kosninga.


Geta fjölmiðlar hætt að styðja ríkisstjórn?  Hvernig gerist það?


Ríkisútvarpið ohf.  er áhrifamikill fjölmiðill á 320 þúsund manna málsvæði Íslendinga.  Hið opinbera hlutafélag ræður því sjálft hvaða efni er sýnt í Sjónvarpinu á besta tíma á kvöldin. Venjulega er það afþreyingarefni  í kjölfar frétta og Kastljóss.


Á mánudaginn var ákvað RÚV ohf.  að í stað þess að sýna hefðbundið innflutt afþreyingarefni að loknu Kastljósi  skyldi sent beint út frá opnum borgarafundi í Háskólabíói. Þar sátu hnípnir ráðherrar undir þungum ásökunum og kröfu um kosningar og brottrekstur stjórnar Seðlabankans.  Almannamiðilinn RÚV flutti vel skipulagðan mótmælafund inn á heimili allra landsmanna.


Hafi Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri, staðið vaktina á Morgunblaðinu og reynt að halda Sjálfstæðisflokknum við völd við fjórtán stjórnarmyndanir – eins og Jón Baldvin Hannibalsson sagði forðum – er vel hægt að halda því fram að á mánudaginn var hafi RÚV staðið vaktina með lýðræðinu og kjósendum gegn þaulsetinni ríkisstjórn í vanda.


Ríkisstjórn gegn kjósendum


Nú má vel hugsa sér ríkisstjórnina sem forréttindahóp í  þeim skilningi að völd eru eftirsóknarverð. Ef ofangreint lögmál um að enginn hópur láti forréttindi sín af hendi átakalaust má ætla að RÚV hafi fengið bágt fyrir það að hafa með ákvörðun sinni stillt sér upp með kjósendum og lýðræðiskröfunni  en gegn ríkisstjórninni.


Skyldu spunameistarar ríkisstjórnarinnar hafa farið á taugum?  Ætli Geir og Ingibjörg hafi haft samband við Pál Magnússon útvarpsstjóra? Og kannski nefnt í leiðinni þetta með myndbandið  í fórum G. Péturs Matthíassonar?


Þetta er vitanlega ólíkleg atburðarás en þó alveg skiljanleg og rökrétt af ríkisstjórninni að ávíta RÚV ef tilgáturnar halda sem hér hafa verið settar fram.


Rétt eins og kjósendur álykta rökrétt að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Björgvin G. Sigurðsson, Össur Skarphéðinsson,  Jóhanna Sigurðardóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Kristján Möller styðja í verkum sínum áframhaldandi setu bankastjórnar Seðlabankans á valdastóli.

(Kjallaragrein í DV 27. nóv.)



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?