ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 13.5° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Einræðishneigðin vaknar

22:33 › 25. nóvember 2008

Stjórnvöld koma því inn hjá almenningi að ógnir steðji að þjóðinni frá erlendum öflum en einnig frá öflum innanlands.

Stjórnvöld stunda kerfisbundið eftirlit með venjulegum borgurum, safna upplýsingum um félagastarfsemi þeirra og njósna um hópa.

Stjórnvöld handtaka borgara og sleppa þeim að eigin geðþótta.

Stjórnvöld gera þá lykileinstaklinga að skotspæni sem ekki fylgja stefnu þeirra og grafa undan tilveru þeirra og framavonum.

Stjórnvöld reyna að koma böndum á frjálsa fjölmiðlun og hafa í hótunum við þá.

Stjórnvöld þola illa gagnrýni.Komi hún fram er gagnrýnin gerð tortryggileg og reynt að bendla hana við njósnastarfsemi og mótþrói er talinn landráð.

Stjórnvöld grafa sjálf undan lögum og rétti telji þau slíkt nauðsynlegt.


 


Stjórnvöld koma á fót leynilegum fangelsum og herdeildum til hliðar við almennan her.

KANNAST EKKI ALLIR VIÐ SJÖ AF ÞESSUM ÁTTA ATRIÐUM Í FARI ÍSLENSKRA STJÓRNVALDA?


 


(Þjóðfélagsrýnirinn bandaríski, Naomi Wolf, varar landa sína við andvaraleysi gagnvart ríkisvaldinu sem ævinlega gangi á lagið gegn lýðræði og borgaralegu frelsi. Hún gerir grein fyrir sjónarmiðum sínum í bók sem út kom í fyrra og ber heitið "The End of America - Letter of Warning to a Young Patriot". – Atriðin 8 hér að ofan eru frá henni komin.)



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?