ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 13.5° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Katrín ræðukona á villigötum

13:10 › 24. nóvember 2008

Katrín Oddsdóttir laganemi flutti ræðu á Austurvelli á laugardag.  Hún sagði eitthvað á þá leið að stjórnvöld hefðu neyðst til að skrifa undir 5 milljarða dollara skuldsetningu þjóðarnnar vegna þess að Evrópusambandið vildi það.


Katrín sagði að við gætum ekki sótt rétt okkar fyrir dómstólum vegna þess að Evrópusambandið leyfði það ekki.


Mikið held ég að Davíð Oddsson og Steingrímur J. Sigfússon hafi glaðst þegar þeir heyrðu fjöldann taka undir með Katrínu um að allt sé útlendingum að kenna.  Það sé þeim að kenna að illa sé fyrir okkur komið en ekki afglöpum íslenskra stjórnmálamanna.


Á hinum endanum hamast menn við að koma kerfishruni bankanna yfir á útrásarauðkýfingana. Réttarvörslukerfið,  sem rekið er fyrir reikning skattborgarana, mun sjálfsagt komast að því hverjir hafi brotið af sér og hafa uppi viðeigandi refsingar. Það er sjálfstætt verkefni og ætti ekki að hafa neitt með pólitík að gera.


En hefur ekki verið upplýst nú að Stím málið hefur verið til rannsóknar í heilt ár hjá Fjármálaeftirlitinu?  Hvaða slappleiki er þetta? Er þetta ekki enn eitt dæmið um handónýtt og meðvirkt eftirlitskerfi sem stjórnmálamenn bera ábyrgð á?


Með öðrum orðum: Á annan veginn er rætt um kúgun Evrópusambandsins á íslenskri þjóð á sama tíma og stuðningur við umsókn um aðild að ESB dalar í könnun Fréttablaðsins. Á hinn veginn er aðallega rætt um útrásarauðkýfinga sem hina eiginlegu glæpamenn.


Norska herfræðingnum hans Geirs H. Haarde er greinilega að takast það sem honum er borgað fyrir; að koma sök á hrottafengið Evrópusamband og útrásarvíkinga. Ekkert er stjórnvöldum að kenna. Ekkert er Fjárlmálaeftirlitinu að kenna. Ekkert er Seðlabankanum að kenna.


Á fjósbitanum fitna Davíð Oddsson og Steingrímur J. Sigfússon sem vilja ESB og Samfylkinguna feiga. Þeir sameinast í andúð á Evrópusambandinu og evru, ást á íslenskri krónu og hatri í garð peningafursta sem auðvelt er að kenna um ófarirnar.


Þeir vilja ekki vita af því að hryðjuverkalög Breta og stirfni Evrópusambandsins var okkur sjálfum að kenna. Aulagangi og vítaverðum afglöpum.


Megi þessi orð Uffes Elleman Jensen, fyrrverandi utanríksiráðherra Danmerkur, leiða þá af vegi glötunar:


„Það er leitt að allir vinir mínir á Íslandi skuli vera komnir í þessa klípu. Því gagnstætt því sem margir hafa álitið hef ég ekki átt erfitt með að sjá tilganginn í útrás íslenskra framtaksmanna. Íslendingar vinna meira en flestir aðrir og fara miklu nær því en aðrar Norðurlandaþjóðir að vera sjálfum sér nægir. Svo eru þeir haldnir sjálfstæðisþörf sem einangrar þá á sama tíma og þeir þarfnast samtöðu með efnahagslegu og pólitísku samfélagi annarra þjóða... Hugsið ykkur ef Ísland hefði verið í Evrópusambandinu og með evruna þegar markaðirnir frusu... Gjaldið sem Íslendingar greiða nú er gjaldið fyrir að það að vilja standa einir.“ (Berlingske Tidene 14. október sl.)



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?