Geir og Ingibjörg skilja ekki hvað um er að vera. Þau eru valdapólitíkusar. Þau vilja ekki setja sig í annarra spor. Ekki frekar en Davíð og aðrir sem fylgdu neyðarlögunum eftir með því að segja útlendingum að éta það sem úti frýs. Og kölluðu yfir okkur hryðjuverkalög Breta og reiði ESB (sem er bandalag siðaðra ríkja ef einhver vissi það ekki).
Þegar 30 fyrirtæki til viðbótar fara á hausinn og bankarnir fara að kalla eftir meiri veðum vegna hækkandi húsnæðislána og lækkandi fasteignaverðs... þegar niðurskurðartillögur fjárlaganna fara að verka ... þegar rekstur sjúkrastofnana stöðvast vegna fjárþurrðar... magnast reiði fólks. Mótmælendum fjölgar á Austurvelli. Þá dugar enginn norskur herfræðingur.
Geir og Ingibjörg verða að skilja að bankakerfið féll á þeirra vakt. Engin rannsókn getur leitt neitt annað í ljós. Kjósendur vilja ábyrgð og heilindi.
Ef enginn víkur MJÖG FLJÓTLEGA safna Ingibjörg og Geir glóðum elds að höfði sér. Valdið fjarar undan þeim um leið og það lyftir fjöldanum sem hrekur þau frá völdum.
By the way: Hver borgaði sekt Hauks (frá Kárahnjúkamótmælum) klukkan 17 á laugardegi? Björn Bjarnason? Geir Haarde? Ingibjörg Sólrún? Bjorn Richard Johansen herfræðingur frá Noregi?
Blogg
Hver borgaði sektina?
01:11 › 23. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
