ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.0° 4m/s NNW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Kjósendur biðja um heilindi og ábyrgð

13:50 › 22. nóvember 2008

Norski Glitnissérfræðingurinn, sem ráðleggur ríkisstjórninni að halda blaðamannafundi kortéri fyrir byltingarfundi á Austurvelli á laugardögum, taldi rétt að þessu sinni að ráðherrar lækkuðu við sig kaupið og leggðu spilin á borðið varðandi eftirlaunalögin.

Sennilega er hann líka búinn að benda Geir og Ingibjörgu Sólrúnu að þau verði að tappa af spennunni í þjóðfélaginu með því að víkja svo sem eins og tveimur ráðherrum úr ríkisstjórninni og bankastjórn Seðlabankans.

Bara til að draga úr spennunni og búa til svigrúm fyrir aðgerðir, ESB fundi stjórnmálaflokka í janúar, trúverðugleika fyrir flotkrónu o.s.frv.

En þetta gera þau ekki af einskærri ást á gamla stjórnlynda valdakerfinu sem nær undantekningalaust hefur hliðrað ráðherrum undan ábyrgð í lýðveldissögunni.

Ætli stjórnmálaflokkur að gera sig gildandi og láta taka mark á sér í framtíðinni verður hann að sýna viljann í verki. Viljann til stóru hreingerningarinnar í íslenskum stjórnmálum.

Ingibjörg Sólrún veit að sjúkdómurinn sem hrjáir íslenskt þjóðfélag er gamla spillta valdakerfið sem sópa þarf burt.

Það væri enginn dómur yfir Björgvin G. (hann er þannig staðsettur í ríkisstjórninni) að segja af sér ráðherradómi. Þvert á móti væri hann með því að gefa þjóðinni merki um að hún væri að sigla inn í nýja tíma.
Í stjórnmálum hins nýja Íslands verður mikil þörf fyrir ráðherra sem sýna ábyrgð og heilindi. Þar verður áreiðnalega pláss fyrir Björgvin, jafnvel frekar en alla hina,  ef hann lætur verkin tala.

Krafan um kosningar er líka fín enda fengju kjósendur að segja þessa skoðun sína með þunga í kjörklefanum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?