Heimastjórnaröflin í Seðlabankanum, Sjálfstæðisflokknum og Vinstri grænum róa að því öllum árum að kljúfa ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. VG og Framsókn eru svo gamaldags að halda að aðeins sé hægt að komast til valda með því að hoppa upp í fang Sjáflstæðisflokksins. Og ráðast því á Samfylkinguna sem er eini flokkurinn sem leyfir sér að gagnrýna látlaust bankastjórn Seðlabankans. Steingrímur J. segir ekki styggðaryrði um Davíð Oddsson og Seðlabankann og fagnar gagnrýni hans á ríkisstjórnina. Í Seðlabankanum fitnar Davíð eins og púki á fjósbita og fagnar ákaft sameiginlegum árangri bankastjórnarinnar og Steingríms J. við að koma ríkisstjórninni frá. Steingrímur J. fylgir nú eftir hugðarefni sínu og Davíðs með því að leggja fram vantrausttillögu á ríkisstjórnina. Valgerður formaður Framsóknarfloksins og Siv vita ekki sitt rjúkandi ráð og hamast á Samfylkingunni sem aftur lemur Geir Haarde í hausinn með Seðlabankanum eins og Siv orðaði það á þingi í gær. En Steingrímur missir einnig af lestinni núna. Hann siglir annan kúrs en kjósendur sem krefjast nú lýðræðis, fagmennsku í Seðlabankanum, ábyrgðar stjórnmálamanna, nýs gjaldmiðils, gagnsæis, upplýsinga og réttlætis. Ringulreið innan stjórnmálalfokkanna ágerist á sama tíma og kjósendur hafa æ skýrari mynd af því sem þeir raunverulega vilja. Steingrímur, Valgerður, Ingibjörg, Geir og Davíð mega vita, að kjósendur hafa engu að tapa, viðmið þeirra eru breytt. Kjósendur henda öllum þeim út sem skynja ekki pólitískar breytingar og festa sig í fortíðinni.
Blogg
Steingrímur hjálpar Davíð
13:28 › 21. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
