Til seðlabankastjóranna Ingimundar Friðrikssonar og Eiríks Guðnasonar
Sælir báðir tveir.
Ég hef lengi velt því fyrir mér hvort þið hafið í raun kvittað undir þær aðgerðir Seðlabankans sem nú skilja íslenskan almenning í verstu stöðu sem hann hefur komist í.
Ég hélt að þið væruð gerðir úr öðru og tækjuð starfsheiður ykkar og heilindi fram yfir budduna. Frammi fyrir þjóðinni lítur þetta þannig út að formaður bankastjórnarinnar, Davíð Oddsson, annað hvort tali ekki við ykkur eða þá að þið séuð með afbrigðum leiðitamir taglhnýtingar valdsins.
Voru þið sammála því að skipta bönkunum upp í gamla og nýja banka, koma nýju bönkunum á hreint gagnvart Íslendingum en loka kröfur erlendra viðskiptavina inni í gömlu bönkunum og segja þeim að éta það sem úti frýs?
Þessi aðgerð er kölluð undanskot eigna og kennitöluflakk og varð hér um bil til þess að Evrópa segði upp EES samningnum.
Þessi staða er meðal annars til komin fyrir það hversu fádæma þýlyndi þið sýnið gagnvart valdníðslunni og ruglinu. Út úr þessu komið þið ærulausir, en kannski með budduna í lagi.
Ég er ekki einn um þessa skoðun. Fínlega fer Þorstein Pálsson um þetta orðum í leiðara í Fréttablaðinu í dag og segir:
"Þriggja manna bankastjórn Seðlabankans sýnist hafa beitt öllum pólitískum áhrifamætti sínum síðustu vikur til þess að koma í veg fyrir samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og samkomulag við Breta. Flest bendir til að það hafi verið liður í þeirri pólitík bankans að verja framtíð krónunnar og hindra hugsanlega aðild að Evrópusambandinu. Fróðlegt verður því að fylgjast með hvernig bankastjórnin beitir sér á næstu vikum bæði opinberlega og á bak við tjöldin."
Eiríkur og Ingimundur: Þið hafið enn tækifæri til þess að bjarga starfsheiðri ykkar og æru. Sagan mun ella dæma ykkur hart. Þið vitið það betur en ég. Það drepur engann að standa með sannfæringu sinni. Jafnvel ekki atvinnumissir. Það sem ekki drepur mann bætir mann. Afsögn ykkar myndi hjálpa íslensku samfélagi óumræðilega mikið á leið sinni til heilbrigðari og siðlegri stjórnarhátta. Takið frumkvæðið af slepjulegum stjórnmálaflokkum.
Ég heilsa ykkur með virðingu þegar þið segið af ykkur!
Ég horfi í gegn um ykkur ef þið gerið það ekki!
Kveðja,
Jóhann
Blogg
Hinir seðlabankastjórarnir tveir
10:21 › 15. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
