Alveg heilshugar tek ég undir með bloggi Trésmiðjunnar á dv.is þegar hún spyr:
"Hvaða kaldrifjaði brandari er það... að "samstarfshópur ríkisstjórnarflokkanna" um "endurskoðun stjórnarsáttmálans" sé leyndarmál?
Það er að segja umsókn að ESB og brottrekstur Davíðs.
Er algjörlega ómögulegt að starfa fyrir opnum tjöldum?
Er algjörlega ómögulegt að leyfa almenningi að fylgjast með ákvörðunum um leið og þær eru teknar, já, taka þátt í þeim ákvörðunum?"
Nú segir "Orðið á götunni" á eyjan.is frá allskyns lekum og hefur þá til marks um átök Björgvins G. og Lúðvíks Bergvins. innan Samfylkingarinnar.
Þetta er lapþunnur spuni.
Bara til að hafa það á hreinu. Fréttir ganga út á að afla upplýsinga, sannreyna þær og koma þeim til almennings. Frétt um starfshóp stjórnarflokkana, sem Trésmiðjan getur um, byggist á samtölum mínum og fleiri í áhöfn DV við marga stjórnarliða. Ósköp venjulegri vinnu blaðamanna.
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ og Skúli Thoroddsen frkstj. Starfsgreinasambandsins vilja að Árni Matt og Björgvin G. segi af sér. Þeir hafa gert grein fyrir sínum sjónarmiðum.
Hugsanlega er ein skýring á taugaveiklun varðandi Lúðvík Bergvinsson, en "orðið á götunni" spyrðir hann við Gylfa. Lúðvík skrifaði kjallaragrein í DV síðastliðinn þriðjudag um rannsóknir á bankahruninu, mestu skelfingum íslenska þjóðfélagsins í manna minnum:
"Trúverðugleiki rannsóknar af þessu tagi verður að vera hafinn yfir allan vafa. Mikilvægast er að almenningur sannfærist um það að stjórnvöld hafi ekkert að fela og ætli sér að velta við hverjum steinni. Rannsóknin má ekki hafa þann tilgang - eða líta út fyrir að hafa þann tilgang - að vera fjarvistarsönnun fyrir stjórnmálamenn."
Ætli ráðherrar séu eitthvað taugaveiklaðir vegna svona skrifa?
Blogg
Spuni og sannlíki
13:27 › 13. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
