ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.0° 4m/s NNW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Þjóðnýting fjölmiðla að hefjast

06:30 › 12. nóvember 2008

Er það ekki dásamleg sú tilhugsun að innan tíðar verði ríkið farið að reka tvo fjölmiðla: Ríkisútvarpið ohf. og Morgunblaðið ohf.

Þá þarf Guðni Ágústsson ekki að taka kast eins og Davíð vinur hans Oddsson gerði hér forðum þegar hann vildi setja fjölmiðlalögin gegn Jóni Ásgeir 2004. Nei, Guðna verður strax að ósk sinni um þjóðnýtta fjölmiðla frekar en að hafa þá í vondum höndum eins manns.

Þannig er mál með vexti - eins og dv.is greinir frá - að ríkisbankinn Glitnir er viðskiptabanki Árvakurs sem gefur út Moggann. Ingibjörg og Geir og aðrir stjórnendur bankans hafa nú stórfelldar áhyggjur af vaxandi skuldum og hallarekstri Moggans, en hann skuldaði nýverið nærri fjóra milljarða króna.

Jón Ásgeir, aðaleigandi 365, ætlaði að redda Mogganum með því að leggja inn Fréttablaðið í Árvakur og eignast þar með akkúrat 36,5 prósenta hlut í útgáfunni. Smart.

Af þessu verður áreiðanlega ekki og því gerist nú ríkisbankinn Glitnir órólegur.

Stefnan er tekin: Ríkið eignast fjölmiðlana Guðni minn. Og svo útgerðirnar og þar með kvótann. Og síðan kúabúin og alla mjólkina. Þá verður nú gaman að vera formaður í stjórnmálaflokki og jafnvel ráðherra.

Ég hef aðeins vissar áhyggjur af einu. Hvað ef Ríkismogginn fer að heimta greiðslur úr ríkissjóði? Verður þá nefskatturinn tvöfaldaður? Eða verður RÚV að gera sér að góðu að fá bara helminginn af nefskattinum?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?