ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.0° 4m/s NNW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Ný skilaboð frá kjósendum

16:48 › 1. nóvember 2008

Málið liggur ljóst fyrir: Nú er kominn alþjóðlegur stimpill á efnahagsstefnu Davíðs Oddssonar, sem ríkti í 13 ár. Bankakerfið hrundi og þjóðin sagði sig til sveitar hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

Kjósendur liggja ekki á skoðunum sínum í tveimur fylgiskönnunum flokkanna. Í nýrri könnun Morgunblaðsins er fylgi Sjálfstæðisflokksins 22 prósent, minna en nokkru sinni. Fylgi ungra kjósenda og allt upp að fimmtugu er innan við 20 prósent.
Samfylkingin hefur stýrt með þeim í 17 mánuði en er stærstur flokka, með 37 prósenta fylgi. Hvers vegna? Aðeins ein skýring er augljós: flokkurinn vill aðild að ESB og kasta krónunni fyrir evru. Kannski vill Samfylkingin einnig taka til í úreltu og meðvirku pólitísku kerfi kunningjaveldis og frændhygli.

Kjósendur skilja nú  að mesta glapræðið og stærsta þversögn samtímans er sú að afturhaldssemi og illa grunduð þjóðernishyggja varð til þess að Íslendingar glötuðu efnahagslegu sjálfstæði sínu í hendur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þvermóðskuleg þráhyggja  Sjálfstæðisflokksins gegn nánari samvinnu við nágrannaþjóðir varð okkur að falli. Þetta er eiginlega alveg óskiljanlegt. 

En kjósendur hafa nú skilið að einungis í náinni samvinnu og samstarfi við vini og frændur Evrópu getum við haldið efnahagslegu sjálfstæði okkar. 80 prósent þeirra vilja taka upp evru samkvæmt nýrri könnun Morgunblaðsins.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?