Munið bloggarar og aðrir sem vinnið með upplýsingar: Glitnir, Landsbankinn og Kaupþing eru að skipta um kennitölur; sömu nöfn en nýjar kennitölur ríkisbankanna. Það merkir að allt efni sem nú er að finna á vefsíðum bankanna verður tekið niður. Geymið efni sem þið þurfið að nota eða eiga í fórum ykkar. Það er til dæmis sjálfsagt að halda til haga hverjir sátu í bankaráðum bankanna þegar þeir féllu.
Krónan er búin að vera og skapar átthagafjötra. Svo falla skipafélögin. Hversu lengi geta flugfélögin haldið velli? Meira að segja DeCode er að verða tiltölulega stöndugt fyrirtæki miðað við restina.
Í stórum lánasamningum eru yfirleitt ákvæði um að þeir séu uppsegjanlegir ef upp koma ófyrirsjáanlegar aðstæður. Þá gjaldfalla lánin. Verður allt í lagi með fjarskiptafyrirtækin og orkufyrirtækin?
Blogg
Skipt um kennitölur
23:15 › 9. október 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
