ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.0° 4m/s NNW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Rússarnir koma

10:31 › 6. október 2008

Ansi væri nú gaman ef Björgólfur Thor Björgólfsson gæti nýtt sambönd sín í Rússlandi og útvegað svo sem eins og 15 hundruð milljarða hjá Pútín til þess að hefta algert hrun íslenska fjármálakerfisins.
Það yrði nátturulega gegn einhverjum skilyrðum. Ég sé fyrir mér að Rússar vilji fá að reisa eina olíuhreinsistöð og tvö álver fyrir greiðann. Sennilega krefjast þeir einnig þess að fá ótakmarkaðar heimildir til flug í íslenskri lofthelgi.
Ef ég þekki landa mína rétt eru þetta allt aðgengileg skilyrði.
Nú er bara að virkja samböndin hans Björgólfs.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?