Ný könnun Gallup á fylgi flokkanna ætti að vera stjórnarflokkunum talsvert áhyggjuefni. Samanlagt eru Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn með 57 prósenta fylgi sem gefur 38 af 63 þingmönnum.
Lítum nánar á: Sjálfstæðisflokkurinn fengi 26 prósent samkvæmt könnuninni, Samfylkingin 31, VG fengi 27, Framsóknarflokkurinn 10 og Frjálslyndir 3 prósent.
Vinstrisveiflan er augljós; kjósendur hliðrast á skipulegan hátt til vinstri á skalanum. Lengst til hægri tapar Sjálfstæðisflokkurinn 7 til 10 prósentustigum. Hvert fara þeir kjósendur? Hverjir eru þeir?
Nærtækt er að ætla að þarna sé um að ræða kjósendur sem vilja viðræður um aðild að ESB og nýjan gjaldmiðil og einhverja uppstokkun í forystunni. Telja má víst að þessir kjósendur flyjist að mestum hluta yfir á Samfylkinguna, sem einn flokka er óklofinn aðildarsinni.
En Samfylkingin fær ekki nema 31 prósent (er þó yfir kjörfylgi sínu). Ef flokkurinn nærist á óánægjufylgi frá Sjálfstæðisflokknum hlýtur Samfylkingin jafnframt að tapa óánægðum jafnaðarmönnum yfir til VG, en vaxandi óþols gætir í röðum þeirra gagnvart stjórnarsamstarfinu. Þessi leki út úr Samfylkingunni til vinstri er líklegur þar sem fylgi VG mælist nú 27 prósent og meira en Sjálfstæðisflokksins. Reyndar er fylgissveiflan svo mikil hjá VG að óhugsandi er annað en að Steingrímur og kó fái kjósendur frá báðum stjórnarflokkunum.
Lítið er að segja um Framsóknarflokkinn og Frjálslynda, sem skrapa botninn, annað en það, að þeim hefur ekki tekist að ná vopnum sínum í stjórnarandstöðu á örlagatímum í sögu lýðveldisins.
Athyglisvert er að ef kosið yrði nú gætu VG, Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn myndað tveggja flokka stjórn með öðrum hvorum hinna stóru flokkanna.
Samt sem áður eru stóru flokkarnir í málefnalegri pattstöðu þegar kemur að framtíð landsins, gjaldmiðilsmálum og samstarfi við aðrar þjóðir. Einkum vegna þess að klofnings gætir innan VG og Sjálfstæðisflokksins varðandi þær spurningar á sama tíma og atvinnulífið og kjósendur virðast hafa skýrari afstöðu til málanna.



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
