Með hverjum degi verður ástandið alvarlegra í kjölfar bankahrunsins.
Hvað verður um kúabúin í landinu sem skulda að jafnaði 35 milljónir hvert? Verða þau þjóðnýtt? - Hvað um fjölmiðlana sem mega þola 50 prósenta samdrátt auglýsingatekna á örskömmum tíma á sama tíma og pappír og blek hefur hækkað um tugi prósenta í verði á jafnskömmum tíma. Lifa dagblöðin það af? Deyr Skjár einn og Stöð 2 vegna frekju RÚV á auglýsingamarkaði upp á 1,5 milljarða króna á ári á sama tíma og það hefur þrjá milljarða í vasanum frá skattgreiðendum?
Verið er að segja upp þremur af hverjum fjórum tækniteiknurum og arkitektum í landinu og byggingarfyrirtæki stöðvast. Gríðarlegt atvinnuleysi blasir við þar. Hafa opinberir sjóðir, sem eiga að mæta atvinnuleysi, farið í álagspróf nýlega?
Húsnæðismarkaðurinn er við frostmark. Verð á húsnæði fellur líklega meira en svörtustu spár gerðu ráð fyrir. Fasteignasalar missa atvinnuna og helmingur heimila verður tæknilega gjaldþrota - skuldir verða meiri en eignir - eftir fáeina mánuði. Ætlar Intrum og sýslumenn að ganga í skrokk á atvinnulausu og auralausu fólki?
Hvað verður um Landsvirkjun og Orkuveituna þegar álverð fellur og þar með tekjur af orkusölu um leið og hundruð milljarða króna skuldir aukast?
Já og sjávarútvegurinn. Þolir hann vaxtasvipuna frekar en aðrir sem þurfa lánsfé STRAX UM MÁNAÐAMÓTIN til að greiða laun og skatta?
Ríkisbankar. ríkismjólkurbú, ríkisfjölmiðlar, ríkisarkitektar, ríkisverktakar, ríkisfasteignasalar, ríkisheimili...
Verður fjárlagahallinn 100 milljarðar króna á næsta ári? Eða 150 milljarðar?
Og 3.000 námsmenn í útlöndum: Hvað með þá? Þeir eru þegar farnir að taka sig upp vegna skorts á framfærslufé. Sorglegt.
Við breyttumst í niðurlægða betlara á einum mánuði. Fordæmd og smáð þjóð sem jafnvel ber ábyrgð á atvinnuleysi þúsunda í nálægum löndum.
Getur einhver sagt mér hvar ég get fengið svör við þessum spurningum? Vill einhver vísa mér á þá sem bera ábyrgð á þessu?
Blogg
Grafalvarlegt
00:38 › 30. október 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
