Innan tíðar rennur það upp fyrir Stengrími J. Sigfússyni, formanni Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, að flokkur hans gegnir meginhutverki við endursköpun íslenskra stjórnmála og pólitíska kerfisins. Það mun renna upp fyrir honum að kjósendur hafa fengið sig fullsadda af stöðnuðum íslenskum stjórnmálum sem höfðu ekki þrek eða hyggjuvit til þess að fylgja eftir hraðfara þjóðfélagsbreytingum.
Daginn sem þetta rennur upp fyrir Steingrími J. áttar hann sig líka á því að það er meginviðfangsefni hans og jafnaðarmanna í þessu landi að færa þjóðina aftur í átt að norræna velferðarmódelinu sem frjálshyggjan – sem nú hefur beðið herfilegan og eftirminnilegan ósigur – hefur fært okkur frá á leið sinni að bandarísku kerfi ójafnaðar og einkavæddrar velferðar þeirra sem eiga peninga.
Steingrímur J. er einnig í þann veginn að uppgötva að kjósendur VG sem og aðrir borgarar þessa lands hafa gert upp við sig að krónan er búin að vera; að krónan kostaði okkur nærri því efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar. Það mun renna upp fyrir Seingrími J. að afturhaldssemin og einhvers konar þjóðremba varð okkur að falli. Hann mun átta sig á þeirri þversögn að einungis í nánara samfélagi við aðrar Evrópuþjóðir innan Evrópusambandsins verður unnt að halda efnahagslegu sjálfstæði að svo miklu leyti sem það hefur einhverja merkingu ennþá. Þennan dag rennur skýrt upp fyrir Steingrími J. að hann og flokkur hans geta ekki lengur barist gegn vilja samtaka íslenskra launamanna og atvinnulífsins alls sem krefst evru og aðildar að ESB. Þennan dag sættir Steingrímur J. sig við að 70 prósent kjósenda VG vilja kanna aðild að ESB frekar en að missa efnahagslegt sjálfstæði.
Nákvæmlega þennan dag áttar Steingrímur J. sig á því að hann þarf ekki lengur að gæla við það að gerast hækja Sjálfstæðisflokksins í enn einni sérhagsmuna- og spillingarstjórninni. Einmitt þennan dag sker hann upp herör gegn valdakerfi sem gætir sérhagsmuna með einkavæðingu banka jafnt og við þjóðnýtingu þeirra. Alls staðar eru karlarnir með flokksskírteinin.
Steingrímur J. hefur hreingerninguna með öðrum jafnaðarmönnum í landinu. Og kemst að því að hann getur stundað kröftuga umhverfispólitík innan ESB.
Þegar Steingrímur J. sýnir af sér þá visku og sveigjanleika að breyta með þessum hætti stefnu sinni og VG, breytast íslensk stjórnmál og valdahlutföll í þjóðfélaginu. Þann dag fallast VG og Samfylkingin í faðma og ná 38 til 40 þingmönnum ríkisstjórn með norrænu sniði.
Það tjón er ómælt sem hlotist hefur af persónulegri óvild og kreddum fortíðarinnar vinstra megin við miðju íslenskra stjórnmála. Nú hefur Steingrímur J. hins vegar sögulegt tækifæri til þess að hefja tiltekt og endurnýjun í íslenskum stjórnmálum í samvinnu við Samfylkinguna. Til þess þarf hann að komast upp úr fari stöðnunarinnar og hlusta meira, til dæmis á samtök launamanna í landinu sem hann telur sig berjast fyrir.
Mestu hagsmunirnir eru að brjóta á bak aftur úrelt, spillt og meðvirkt valdakerfi sem nú hefur steypt þjóðinni í glötun. Átti Steingrímur sig á þessu verður auðvelt fyrir hann að samþykkja með alþýðunni og kjósendum þessa lands að skipta þurfi út krónunni fyrir evru. Hann mun sjá að nú er ekkert undanfæri og að endurreisnin er fólgin í því að komast til valda með Samfylkingunni og evruna að vopni og gefa Sjálfstæðisflokknum nokkurra ára siðbætandi frí.



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
