ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.0° 4m/s NNW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Undarleg tilviljun?

23:53 › 23. október 2008

Seldi Baldur Guðlaugsson hlutabréfin sín eftir
komuna heim frá London í byrjun september?


Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra átti fund með Alasdair Darling, fjármálaráðherra Breta, 2. september síðastliðinn.
Nú þegar birt hefur verið símtal Darlings og Árna Mathiesen, fjármálaráðherra, 7. október síðastliðinn hyggst viðskiptaráðherra fara yfir gögn af þessum fundi.
Það er gott því Darling gefur í skyn í viðtalinu við Árna að hann hafi verið vantrúaður á að allt væri í lagi með IceSave reikninga Landsbankans í Bretlandi. Maður hafði á tilfinningunni að breska fjármálaeftirlitið hefði unnið sína heimavinnu og vissi betur en íslensk yfirvöld.

Með Björgvin í för voru Jón Þór Sturluson aðstoðarmaður Björgvins, Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, Jónína S Lárusdóttir ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytisins og Baldur Guðlaugsson ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins.

Upplýst hefur verið að Baldur Guðlaugsson seldi hlutabréf sín í Landsbankanum mánuði áður en Landsbankinn rúllaði. Það mun sem sagt hafa verið fáeinum dögum eftir að hann hafði fengið vísbendingar hjá Darling og aðstoðarmönnum hans, hugsanlega úr breska fjármálaeftirlitinu, um að Landsbankinn stæði tæpt.

Undarleg tilviljun?

Grundvallarregla í verðbréfaviðskiptum er að ef þú efast skaltu selja. Efaðist Baldur ekki nægilega mikið til að gera þjóðinni viðvart?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?