ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.0° 4m/s NNW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Hvað um viðhafnarstofuna?

15:22 › 22. október 2008

Ég hef miklar áhyggjur af framkvæmdum við tónlistarhúsið. Verður það hálfbyggt um alla eilífð eins og minnisvarði um miklar skuldir, djarfa útrás og hrun í stað þess að verða glæsilegt minnismerki um framtak og þor Björgólfs Guðmundssonar sem fékk að kaupa banka af Davíð?
Ég heyrði áreiðanlega eftir byggingarstjóranum haft í fjölmiðlum að hugsanlegt væri að breyta teikningum með einhverjum hætti, breyta framkvæmdaáætlunum og svo framvegis. Var hann að reyna að klóra í bakkann?

Því hefur verið fleygt að búið sé að fella brott viðhafnarstofu úr teikningunum. Fallegur salur sem Björgólfur ku hafa látið setja inn á teikningarnar með glervegg út á Sundin. Er þetta ekki bráðræði? Verður ekki alltaf til VIP stjörnulið óháð kreppum sem koma og fara?
Hvar á norræna kóngafólkið að tylla sér þegar húsið verður vígt? Getur einhver sagt mér hvort búið er að fikta við teikningarnar?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?