ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.0° 4m/s NNW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Law and Order

17:13 › 18. október 2008

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, talar nú um sjálfstæðisbaráttu við háskólanema til þess að endurheimta fjárhagslegan styrk þjóðarinnar. Þegar fjármálaheimurinn leikur á reiðiskjálfi skiptir að hans mati öllu að lög og reglur séu hafðar að leiðarljósi þegar menn vinni sig út úr rústunum.


Ekki veit ég hversu marga “Law and Order” þætti BB hefur horft á. En svo mikið er víst að á sama tíma og hrannast upp útgjaldapóstar hjá hinu opinbera vegna mistaka og andvaraleysis stjórnkerfisins, beinir hann sjónum að hugsanlegum brotamönnum í þeirri stétt sem er skilgetið afkvæmi þess markaðsfrelsis sem hann, Davíð og Hannes Hólmsteinn hafa boðað í aldarfjórðung. Stétt framtaksmannanna sem njóta einfalda eftirlitsleysisins sem er kjarninn í fræðum Chicago-drengjanna hans Miltons Friedman. Þeir kölluðu þetta frjálsan markað undir stjórn ríkis sem ætti að vera eins einskonar nætur- eða vitavörður. Og ekkert meira.



Björn og Davíð hafa notað lögregluyfirvöld og saksóknara, til þess að taka sex ára æfingu réttarvörslukerfisins á einum þessara framtaksmanna. Undirbúningurinn fór fram á ritstjórnarskrifstofu Morgunblaðsins þar sem lagt var á ráðin um saksókn í Baugsmálinu. Er þetta ekki réttarvörslukerfið í hnotskurn í boði Flokksins?  Allir sem lesið hafa blautlega tölvupósta Jónínu til Styrmis, fyrrum Moggaritstjóra, og svör hans um innvígt og innmúrað agavald foringjans vita hvernig kerfið virkar.


Björn Bjarnason er maður sem hrærir í viðkvæmri kviku þjóðarinnar þegar reiðin og vonbrigðin krauma. Beinir athyglinni frá eigin afglöpum og Flokksins sem á og rekur stjórnkerfið og meðvirkar stofnanir þess hverra lykilstöður eru skipaðar vinum og vandamönnum með flokksskírteini.



Dómsmálaráðherrann veit ósköp vel að í jarðvegi reiði og vonbrigða getur skapast það andrúmsloft sem auðveldaði fasistum valdatöku í Þýskalandi og á Ítalíu á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar.

Margaret Thatcher átrúnaðargoð frjálshyggjumanna og einkavæðingarsinna í Bretlandi hrópaði: “Crime is a crime, is a crime, is a crime...” þegar óreirðir brutust út meðal fátæklinga í Brixtonhverfinu í London á sínum tíma. Hún leitaði ekki þjóðfélagsmeina heldur sigaði lögreglunni á fjöldann.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?