Eftirfarandi skrifaði Jónas Kristjánsson inn á vef sinn www.jonas.is 25. júlí síðastliðinn:
"Erlendir fjármálafræðingar furða sig sumir á aðgerðaleysi ráðamanna Íslands í forsætisráðuneyti og Seðlabanka. Richard Thomas hjá Merryll Lynch er einn þeirra, talaði í sjónvarpinu í gær. Taldi hugsanlegt, að þeir ætluðu að þjóðnýta bankana. Ég tel það ósennilegt. Miklu frekar eru Geir og Davíð fangar róttækrar hægri markaðshyggju. Ráðagjafar þeirra hafa tröllatrú á aðgerðaleysi stjórnvalda, telja það allra meina bót. Því meira aðgerðaleysi þeim mun meira getur markaðurinn leikið lausum hala. Það er trúaratriði róttækra markaðshyggjumanna, að frjáls markaðsöfl lækni um síðir öll sár."
Ertu enn jafn viss Jónas? Getur verið að ráðamenn hafi kerfisbundið hundsað aðvaranir, samið áætlanir um þjóðnýtingu þegar í sumar? Ráðgert að koma til dæmis þjóðnýttum Glitni til vinanna í Landsbankanum, en misst tökin á atburðarásinni með skelfilegum afleiðingum?
Nú hækka allir markaðir í heiminum. Íslensku bankarnir eru núll með gati og íslenski örmarkaðurinn fallinn? Þetta er þyngra en tárum taki.
Ertu enn alveg viss Jónas um að ráðamenn hafi ekki ætlað sér að þjóðnýta bankana?
Blogg
Ertu alveg viss Jónas?
12:19 › 14. október 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
