Snúast ekki næstu þingkosningar að einhverju leyti um það hverjir fái að ráða ferðinni þegar ríkisbankarnir verða einkavæddir öðru sinni? Mun reynslan leiðbeina okkur eitthvað í kjörklefanum eða kjósum við einkavinavæðinguna og frændhyglina yfir okkur eina ferðina enn?
Líklega verður einnig felldur dómur yfir peningamálastefnu undanfarinna sjö ára í næstu þingkosningum og teknin stefna á nýjan og stærri gjaldmiðil. Stjórnarflokkarnir hafa báðir stungið höfðinu í sandinn undanfarna mánuði í þeim efnum þrátt fyrir aðvaranir úr ýmsum áttum.
Líka verður kosið um það hverjir fái að vera með í ráðum við að skapa "hið nýja Ísland" úr rústum frjálshyggjutilraunarinnar.
Hvernig væri að efna til kosninga sem fyrst?
Verst hvað marga smáflokka og lítilsiglda stjórnmálamenn dreymir stöðugt blauta drauma um að komast upp í fleti þeirra sem skópu það veldi sem nú er fallið. Þar liggur vanþroski íslenskra stjórnmála sem ekki hafa fylgt eftir hraðfara þróun efnahagslífsins og alþjóðamála undanfarin 20 ár. Með gleraugum sérhagsmunagæslunnar hafa stjórnmálaflokkarnir ekki komið auga á að stjórnmálin og lagasetningin þarf að fylgja þessum hraðfara breytingum.
Blogg
Stór kosningamál
01:04 › 12. október 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
