Kjartan Gunnarsson, góðvinur Davíðs Oddssonar og framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins í aldarfjórðung, tapaði milljörðum á þjóðnýtingu bankanna og kvaðst á fundi í Valhöll ekki vera einn þeirra óreiðumanna sem vinur hans Davíð hafði talað um í frægu Kastljósviðtali.
Allir vita að Kjartan var að snupra Davíð, einkum þeir sem á hlýddu í Valhöll.
En svo sendi Kjartan frá sér yfirlýsingu og kvað þetta allt tóman misskilning; hann hefði ekki gagnrýnt Davíð og allt væri slétt og fellt milli þeirra.
Sennilega hefur Davíð hringt í Kjartan og ítrekað við hann að enn um sinn yrði að ríkja "friður óttans".
6. október 2006 skrifaði Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, eftirfarandi á vef sinn, þegar Kjartan lét af störfum sem framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins undir fyrirsögninni "Fixerinn":
"Innan þessa hóps (langborð Davíðs) fæddist líka hugmyndin um að leggja í refsingarskyni niður stofnanir sem ekki lutu réttum aga. - Þegar einkavæðingin hófst réðu hinir innvígðu og innmúruðu því líka hverjir fengu aðgang að miklum efnislegum verðmætum því ákvörðunin um helmingaskiptin við sölu bankanna var tekin þarnaþ Þar nutu hinir innvígðu ráðgjafar Kjartans, sem sjálfur innsiglaði hrossakaupin með því að þiggja að launum náðarsamlegast þau miklu völd sem felast í stjórnarformensnsku í öflugum banka að eilífu."
Þarna var átt við Landsbankann sem nú hefur verið þjóðnýttur.
Davíð veit "of mikið" um Kjartan og eftir eina orðsendingu frá honum veit Kjartan að hann verður að knékrjúpa og biðjast opinberlega afsökunar.
Enn um sinn ríkir "friður óttans".
Blogg
Friður óttans
15:07 › 12. október 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
