Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, krafðist 4.000 milljarða króna bóta frá Íslensku þjóðinni. Það eru tekjur ríkissjóðs í tíu ár!
Ímyndaðu þér að heimili þitt fái sektardóm upp á 60 milljónir. Það eru ársrstekjur heimilisins í 10 ár! Yrði ekki óhjákvæmilegt að herða sultarólina?
Jafnvel þótt krafa Breta vegna falls íslensku bankanna (blessuð sé minning þeirra) verði aðeins 400 milljónir þá þurrkar krafan upp tekjur ríkissjóðs í heilt ár. Vegirnir, spítalarnir, framhaldsskólarnir, velferðarkerfið; Allt í uppnámi. Nema með lántökum. Hvar á að fá lán þegar enginn vill lána og lánshæfismat ríkisins skrapar botninn?
Allt er svo seigfljótandi hér. Einkum í kring um Geir. Engin snögg viðbrögð. Af hverju tóku menn ekki á vandanum samdægurs þegar Alasdair Darling fjármálaráðherra Breta vann hryðjuverk á íslensku þjóðinni með því að rýja hana trausti með gáleysislegu tali um að við værum óreiðumenn sem ekki stæðu við skuldbindingar? Hann beitti hryðjuverkalögum sem kollsteyptu því sem eftir var af íslenskum hluta breska bankakerfisins? Trúði hann því að við værum ekki siðrænt ríki með fyrirmyndar réttarfar?
Meira að segja breskir lögfræðingar hafa efasemdir um þetta og telja að landar sínir í breska stjórnarráðinu myndu tapa málinu ef Íslendingar krefðust bóta fyrir eyðileggingu á trúverðugleika íslenska ríkisins.
Af hverju tóku menn ekki frá 30 milljónir í hvelli og kostuðu íslenskt almanantengslafólk til utanfarar til þess að leiðrétta Breta og draga úr skaðanum, til dæmis í fjölmiðlum.
Við hefðum ekki þurft að senda okkar æðstu menn. En við hefðum getað sent einn af okkar bestu mönnum, Jón Baldvin Hannibalsson. Hann veit allt um Bretland. Hann nam hagfræði í Skotlandi, Hann var fjármálaráðherra og utanríkisráðherra, Hann var sendiherra. Hann er baráttuglaður mælskumaður og hefði án efa heillað breska fjölmiðla með líflegri nærveru.
Svo hefði mátt senda einhverja fleiri. En allt er svo seigfljótandi.
Blogg
Allt er svo seigfljótandi
01:47 › 11. október 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
