ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.0° 4m/s NNW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Spaugstofan og Jyllandsposten

00:00 › 29. janúar 2008

Nú er bara að leggja til við Karl Ágúst og aðra Spaugstofumenn að þeir sviðsetji Kastljósþátt þar sem Spaugstofan er leidd fyrir rannsóknarrétt Ólínu Þorvarðardóttur og annarra sem vita hvar draga ber línuna fyrir hina siðblindu.

Heimspekingurinn Slavoj Zizek frá Slóveníu, sem hélt fyrirlestur fyrir fullu húsi hér á landi um síðustu helgi, segir í ágætri grein að þeir sem töldu að farið hefði verið yfir eitthvert strik í Jyllandsposten með birtingu skopteikninga af Múhammeð - töldu sig smánaða og svívirta með öðrum orðum - hefðu átt að sækja mál sitt fyrir dómstólum; höfða meiðyrðamál á hendur ritstjórum eða ábyrgðarmönnum Jyllandsposten frekar en að krefjast þess að fá afsökunarbeiðni frá danska ríkinu. Zizek þótti sem sé að viðbrögð múslima við teikningunum frægu endurspegluðu algert skilningsleysi þeirra á grundvallarreglunni um óháð og sjálfstætt borgaralegt samfélag.

Tjáningarfrelsið er einn af hornsteinum þessa samfélags. Það verður ekki gefið upp á bátinn fyrir bókstafstrúarmönnum. Frjálslyndum Íslendingum kann að þykja húmorlaust ofstækið gegn Spaugstofumönnum minna svolítið á viðbrögð bókstafstrúaðra múslima gegn skopmyndunum frægu í Jyllandsposten. Þeir geta þá ásamt Zizek farið með upphafsorðin  í Second Coming eftir írska skáldið William Butler Yeats: "the best lack all conviction, while the worst are full of passionate intensity" (hina bestu skortir alla sannfæringu en hinir verstu eru bólgnir af ástríðufullum ákafa). Vonandi eru frjálslyndir menn ekki svo blóðlausir að gefast upp fyrir ofstækinu, hvað þá vitleysunni í "Náðhúsi" Reykjavíkur þar sem menn vilja vera í friði með allt niður um sig eins og Þráinn Bertelson orðar það svo ágætlega.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?