Því skyldi þetta ekki allt eins geta gilt um landsstjórnina? Í Noregi gengu norskir vinstri-grænir, jafnaðarmenn og miðjuflokkur í líkingu við Framsókn hönd í hönd fyrir kosningarnar hausti´ð 2005. Og sigruðu og sitja sem fastast undir verkstjórn Stoltenbergs. Steingrímur J. Sigfússon mælti eindregið með þessari aðferð fyrir síðustu þingkosningar hér á landi. Hefðirnar og vaninn höfðu betur og menn gengu óbundnir til kosninga eins og venjulega, sem virðist nú vera rótin að íslenskum klækjastjórnmálum samtímans.
Ærnar ástæður eru til þess að mynda mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn sem haft hefur undirtökin í stjórnkerfinu í meira en 50 ár af þeim 64 árum sem liðin eru frá stofnun lýðveldisins. Það verður áreiðanlega geymt en ekki gleymt af hálfu Samfylkingarinnar hvernig sjálfstæðismenn splundruðu meirihluta Tjarnarkvartettsins í höfuðborginni. Fleira mætti telja eins og blygðunarlausa meðferð valds við að manna stjórnkerfið vildarvinum og vandamönnum.
En um hvað ætti slíkur sambræðingur að norskri og R-lista fyrirmynd að snúast? Geta VG og Framsóknarflokkur fylgt eftir stærstu fyrirtækjum landsmanna í viðleitni þeirra við að fá íslensk stjórnvöld til að ganga í Evrópusambandið og kasta krónunni? Varla nema verulega þvingandi aðstæður kæmu upp og efnahagslegur þrýstingur yrði óbærilegur.
En samstaðan gæti snúist um varnir gegn áformum Sjálfstæðisflokksins um einkavæðingu auðlinda landsmanna, að standa vörð um velferðarkerfið, breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu, markmið í umhverfismálum, lýðræðisumbætur, aukna dreifingu valds, siðbót í stjórnmálum og skikkanlega utanríkispólitík varðandi samvinnu við Evrópu um varnir. Svo er aldrei að vita nema VG og Framsókn fái vitrun varðandi aðild að ESB. Raddir í þá áttina heyrast nú þegar innan þessara flokka. Þá fyrst skapast grundvöllur til gagngerra breytinga.
Í stuttu máli: Sjálfstæðisflokkurinn safnar glóðum elds að höfði sér vegna óskammfeilinnar meðferðar sinnar á valdi.



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
