ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.0° 4m/s NNW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Harkalegt flugtak nýja meirihlutans

00:00 › 24. janúar 2008

Morgunblaðið og sjálfstæðismenn munu keppast við að tala um skrílslæti og vanvirðingu við leikreglur lýðræðisins þegar Reykvíkingar á borgarstjórnarpöllum trufla fundarhöld borgarstjórnar. En endurspeglar þetta ekki óánægju 74 prósenta Reykvíkinga? Er ekki hægt að snúa dæminu við og spyrja hvort borgarstjórn ætti ekki að sýna borgarbúum virðingu og trúnað? Virða leikreglur lýðræðisins?

Lög og reglur sem koma í veg fyrir að Reykvíkingar fái að kjósa, endurnýja umboð aflanna í borgarstjórn, eru vondar reglur. Reykvíkingar ættu að fá að kjósa nú. Getur Alþingi ekki brugðist hart við breytt lögum í þá veru?

Það er svo einkar táknrænt að Ólafur F. nýkjörinn borgarstjóri og sjálfstæðismenn þora ekki að beita lögreglunni til þess að rýma áheyrendapalla í borgarstjórn. Væri ekki þversagnarkennt að siga lögreglunni á kjósendur til þess að framfylgja lýðræðinu í Reykjavík?

Í pólitík og viðskiptalífi er stundum talað um harkalega lendingu. Er ekki hægt að tala um harkalegt flugtak hjá nýjum meirihluta í Reykjavík? Harkalegt flugtak og harkalega lendingu?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?