ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.0° 4m/s NNW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Skyndidómsmálaráðherrann andar léttar

00:00 › 23. janúar 2008

Árni fær hins vegar algeran frið varðandi sölu almenningseignanna á Keflavíkurflugvelli. Enda hefur Geir Haarde, æðsti yfirmaður Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar og leiðtogi Árna gefið félaginu, Árna sjálfum og öðrum flokksbræðrum  og -systrum suður með sjó syndakvittun. Hana má finna á vefsíðu forsætisráðuneytisins en hún er dagsett 22. nóvember síðastliðinn. Þar stendur eftirfarandi: "Þá er rétt að geta þess að fjármálaráðherra gaf Þróunarfélaginu 8. maí s.l. almennt umboð til sölu fasteigna þannig að hver einstök sala hefur ekki verið borin upp við fjármálaráðherra til samþykktar."

Af hverju spyr enginn Árna fjármálaráðherra hvers vegna hann afsalaði sér eftirlitshlutverki  með sölunni 8. maí á síðasta ári?  - Kannski gerir Ríkisendurskoðandi það. Reyndar sér maður alveg fyrir sér vandann sem skapast hefði ef Árni hefði fengið í hendur samning til undirritunar þar sem kaupandinn var Þorgils Óttar Mathiesen.

Jæja. Kannski nægir valdataka flokkssystkinanna í Reykjavík til þess að leiða athygli fjölmiðlanna frá þessum atriðum í eitt skipti fyrir öll. Árni getur kannski andað léttar. "Settur afglapi" eins og Ólafur Páll Jónsson heimspekingur sagði í Fréttablaðsgrein 17. janúar síðastliðinn um flokkshollan yfirgang Árna gagnvart dómsvaldinu. Dómarafélag Íslands virðist sammála Ólafi Páli, Sigurði Líndal og öðrum þeim sem gagnrýnt hafa Árna skyndiráðherra fyrir að reyna á grófan og blygðunarlausan hátt að gera íslenska dómskerfið að fjölskyldufyrirtæki.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?