Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi Frjálslyndra og óháðra verður næsti borgarstjóri Reykvíkinga. Hann hefur gefið sig út fyrir að vera málafylgjumaður og rær gegn þunga tímans í málefnum Reykjavíkurflugvallar. Ágreiningur um skipulags- og umferðarmál í borginni er sennilega svipaður hvort sem Ólafur F. stýrir með Degi B. og hans liði eða Vilhjálmi Þ. og sexmenningunum. Einkennilegt er að sjá Ólaf F. halda fram sem sérstöku stefnumiði að orkulindir og veitufyrirtæki skuli áfram vera eign borgarbúa en kasta sér í fangið á eina flokknum sem gælir við einkavæðingu orkulinda og veitufyrirtækja.
Ólafur F. talaði hátt um óheilindi Vilhjálms Þ. þegar hann snéri baki við honum um myndun meirihluta eftir borgarstjórnarkosningar 2006 og gekk í sæng með Birni Inga Hrafnssyni.
Hætt er við að heilindastimpillinn máist af Ólafi F. þegar hann hefur nú laumast þegjandi upp í fang Vilhjálms, sem býður honum volgan borgarstjórastól.
Allir vita að Vilhjálmur Þ. hefur gengið með hnífasett í bakinu eftir að vinirnir í borgarstjórnarflokknum fóru á fund forsætisráðherra forðum og klöguðu hann vegna REI málsins. En Ólafur F. er læknir og og hann hefur nú hjálpað Vilhjálmi Þ. að ná hnífum úr baki hans og reka þá í bak Dags B.
Veiki hlekkurinn í fráfarandi borgarstjórnarmeirihluta var Ólafur F. Veiki hlekkurinn í nýjum meirihluta er einnig Ólafur F. Ekki fylgir Margrét Sverrisdóttir honum, en það gerir stöðu hans enn veikari.
Sjálfstæðismenn voru eins og fíkniefnasali á skólalóð sem tókst að lokum með gylliboðum að lokka til sín einn ístöðulausan nemanda. En þeir gleðjast áreiðanlega þegar þeir ná aftur völdum í höfuðborginni þótt margir þeirra séu hugsi og sumir þeirra með óbragð í munninum.



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
