Íris Erlingsdóttir

Íris Erlingsdóttir

Íris Erlingsdóttir er fjölmiðlafræðingur og dálkahöfundur fyrir DV. Hún hefur undanfarin ár skrifað um eftirmála og áhrif – staðreyndafælni, afneitun og Stokkhólmssyndróm – bankahrunsins á íslensku þjóðina fyrir íslenska og bandaríska fjölmiðla. Íris er búsett í Bandaríkjunum.

„Aðeins tvennt er óendanlegt, alheimurinn og mannleg heimska, og ég er ekki viss um hið fyrrnefnda...“
- Albert Einstein

Nýja Ísland my ass

2. ágúst 2012 › 19:11

Ég velti oft fyrir mér með íslenska pólitík, þá stjórnmálamenn sem sögðust/segjast vilja þrífa eftir hrunið, skapa hið „Nýja Ísland - „gagnsætt" og „réttlátt" Ísland; þegar þetta fólk kemst svo til valda, hvort sem er í ríkisstjórn eða á alþingi, hvað gerist með það?


Er eitthvað í kaffinu í Stjórnarráðinu eða niðri á Austurvelli? Hvaða djús er þetta fólk að drekka? Því annað hvort er einhvers konar heilatruflun í gangi eða sníkjudýraklíka auðvaldsins er í raun og veru skuggastjórn landsins og þessi raunverulegu stjórnvöld hóta þessum stjórnmálamönnum að fjölskyldur þeirra verði myrtar eða eithvað hryllilegt gerist ef þeir voga sér að hreyfa við kerfinu sem veitir sníkjudýraklíkunni óheftan aðgang að öllum fjármálastofnunum landsins til að ræna þær og þjóðina að aftan frá og framan. Eða hvernig á maður annars að skilja þá staðreynd að útrásarhyskið sem lifir í vellystingum á þýfinu úr síðustu hrunsorgíu (það er engin ástæða til að ætla að önnur sé ekki í nánd) meðan örlög launþega eru að drattast með verðtryggða skuldahlekkina fram á grafarbakkann?


Fimm einstaklingar og fyrirtæki hafa fengið meira  niðurfellt af skuldum en öll heimilin í landinu samanlagt, eins og RÚV greindi frá:


Arionbanki, 30 milljarða skuld 1998 ehf, að stórum hluta í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Þrjátíu þúsund milljónir!
Landsbankinn, 50 milljarða skuld Magnúsar Kristinssonar, útgerðarmanns í Vestmannaeyjum. 50 þúsund milljónir!
Arionbanki, 88 milljarða skuldir skuldir Kjalar, eignarhaldsfélags Ólafs Ólafssonar
Landsbankinn, 20 milljarða skuld Guðmundar Kristjánssonar í Brimi.
Skuldir N1 (Bjarni Ben), 17 milljarðar voru felldar niður


Ef þetta er ekki skilgreining á þjófræði þá veit ég ekki hvað er. Ekkert af þessu forréttindaslekti er látið bera ábyrgð. Þetta eru ekki einhverjar tölur á blaði, þetta eru raunveruleg verðmæti, töpuð og stolin, eftir uppskrift frá Alþingi - uppskrift sem ekki hefur verið hreyft við frá hruni. Almennir skattborgarar bera tapið. En fólki virðist vera alveg sama. Kjósendur eru æstir í að fá Sjálfgræðisflokkinn og Bjarna Ben í Stjórnarráðið.


 Meðan fólk á fyrir brauði, bjór og internetstengingu þar sem það getur fjasað á fésbók eða rifið kjaft í skjóli nafnleyndar nennir enginn að mynda samstöðu til að taka á sníkjudýrum þjófræðisins og þeir sem eitthvað meira hafa á milli handanna eiga þá ósk heitasta að fá inngöngu í sníkjudýraklúbbinn eða að komast nógu nálægt honum til að geta skriðið í kringum valdastólana og sleikt sletturnar og slefið ofan af hlaðborðinu þar sem verið er að sjúga síðustu næringadropana úr hýslinum.


Reyndar er hýsillinn dauður. Eins og Stefán Jón Hafstein sagði, Gamla Ísland fékk viðlagahjálp á líkbörunum. Nú eru sníkjudýrin að tæta í sig hræið. Nýja Ísland my ass. 


 



Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.