„Ef þið eruð að fiska eftir einhverjum fjármálum, þá fáið þið engar upplýsingar um þau" sagði Hannes Hólmsteinn Gissurarson hjá „Rannsóknarsetri um nýsköpun og hagvöxt" við DV. Eiginlega segir þetta allt sem segja þarf um þessa nýstofnaðu ranghugmyndaveitu í anda bandarísku Cato og Heritage*1 stofnananna.
Eðlilegt svosem að útverðir íslenska auðvaldsins deili sama mottóinu: „Ef þið eruð að fiska eftir einhverjum upplýsingum um eitthvað mikilvægt, þá fáið þið engar upplýsingar."
Betra nafn væri Herrasetur um auðvaldsáróður og upplýsingamengun (eða Ranghugmyndaveita um Náhirðarhátt og Hrunsafneitun), en í „rannsóknarráði" setursins eru þrír karlar, Hannes Hólmsteinn, Þór Whitehead, sagnfræðingur og Ragnar Árnason hagfræðingur. Jónas Sigurgeirsson er framkvæmdastjóri og stjórnarmeðlimur ásamt Gísla Haukssyni og Jónmundi Guðmarssyni, frkv. Sjálfgræðisflokks (sem e.t.v. mun deila visku sinni um fjárglæfrafimleika og skuldasjónhverfingar*2).
Herrasetrið mun eiga samstarf við ranghugmyndaveiturnar, Heritage Foundation og Cato Institute (Koch bræðra stofnun), þar sem leiguprófessorar og -pennar ameríska óligarkavaldsins hamast við upplýsingahagræðingu, framleiðslu trétoppaáróðurs*, hálflyga og upplýsingamengunar um mikilvæg stefnumál sem hugsanlega gætu bætt hag almennings og vinnandi fólks. (Þetta leiguþý auðvaldsins er allt í góðu sambandi við Hannes Hólmstein: „Mennirnir í Cato og Heritage... eru allir vinir mínir.")
Svo nú höfum við ekki aðeins Bókaútgáfu bankahrunsins, heldur einnig Ranghugmyndabanka bankahrunsins; RNH á í samstarfi við Almenna bókafélagið (Bókafélag Sjálfgræðismanna - enda sami framkvæmdastjórinn á báðum stöðum) um að gefa út „vönduð verk um efnahagsmál og stjórnmál." Nokkur útgefin verk: Íslenskir kommúnistar 1918-1998 eftir HHH; Uppsprettan eftir Ayn Rand og Heilræði Gillz eftir Egil Einarsson.
*1 Heritage stofnunin er #1 sem pólitískasta „hugmyndasetur" Bandaríkjanna.
*2 Áróðursmaskína peningavaldsins fúnkerar á tveimur plönum - grasrótaráróður beint að almúganum og svo „trjátoppa"áróður, beint að elítunni. „Trjátoppaáróðri er ekki beint að manninum á götunni heldur er honum ætlað að hafa áhrif á ákveðna hópa áhrifamikilla einstaklinga: þingmenn og embættismenn, þá sem móta stefnu og framkvæma hana; ritstjóra, fréttastjóra, frétta- og blaðamenn og hægindastólasérfræðinga (sérfræðingaræðið)."
Taking the Risk out of Democracy, Alex Carey.
