Hvers vegna forðast erlendir fjárfestar Ísland? er spurt í fréttaskýringu Sigrúnar Davíðsdóttur í Speglinum frá síðasta miðvikudegi, 11.7.
„Erlendir hagfræðingar hrósa efnahagsþróun á Íslandi, en erlendar fjárfestingar láta á sér standa." Erlendir fjárfestar hafa yfir ýmsu að kvarta hvað varðar hegðun Íslendinga - hvort sem er í einkageiranum eða hjá hinu opinbera. Þeir kvarta yfir "óskýrum svörum, ákvarðanafælni og hvað Íslendingar taka gagnrýni illa." Útlendingar „sem eru að leita fjárfestingatækifæra á Íslandi ... fá stjörnur í augun þegar þeir lýsa stórkostlegum náttúruaðstæðum á Íslandi...En svo, þegar þessi hrifningargusa er gengin yfir, kemur efasemdarglampinn í augun...
„Fyrir nokkrum árum virtust Google og fleiri stórfyrirtæki á leið til Íslands með gögn í gagnaveraviðskipti. Af hverju hafa þessi fyrirtæki nú beint sínum viðskiptum til gagnavera á norðurhjara Skandinavíu eða með öðrum hætti helst úr lestinni?"
Æðikollur Loðingarmsson: „Skiljum ekkert í 'essu"
"Við skiljum ekki hvers vegna fjárfestar hafa ekki áhuga á fyrirtækinu," sagði Æðikollur Loðingarmsson, forstjóri Íslands hf. Æðikollur bætti við að þetta ástand væri þeim mun óskiljanlegra í ljósi þess að kúltúr fyrirtækisins hefði akkúrat ekkert breyst frá fyrirhrunsárunum.
"Við höfum dyggilega viðhaldið ábyrgðarleysi og náhirðarhætti. Eins og Skýrslan greindi frá mætum við seint og illa á fundi og erum illa undirbúnir. Á fundum með útlendingum þolum við ekki hina minnstu gagnrýni og í staðinn fyrir að viðurkenna að vandamál gæti hugsanlega verið á ferðinni hjá okkur sökum við þá um afbrýðissemi og illgirni í okkar garð. Við tölum líka íslensku fyrir framan erlenda fundarmenn svo þeir vita ekkert um hvað við erum að tala og höfum þannig sáð fræjum tortryggni og vantrausts."
"Annars erum við ekkert upp á einhverja útlendinga komnir," sagði Æðikollur. "Nú eru þeir sem rústuðu fyrirtækinu komnir til baka með ránsfenginn úr því. Þeir eru æstir í að fjárfesta í Íslandi hf. Við tökum þeim fagnandi."
„Icelanders have a very long and difficult way to go"
Hmmm... Hvers vegna ætli erlendir fjárfestar hiki við að eiga við Íslendinga? „Icelanders have a very long and difficult way to go," sagði stjórnandi í fyrirtækinu Institute for Turnaround* um stöðu Íslands og orðspor í hinum erlenda fjármálaheimi. „They have to begin to show the world that their business environment... their economy isn't controlled by a bunch of some crazy entrepreneurs." „Íslendingar eiga langa og erfiða ferð fyrir höndum... þeir verða að fara að sýna umheiminum að fjármálaheimur þeirra...efnahagslífi þeirra sé ekki stjórnað af einhverjum klikkuðum athafnamönnum."
(*IFT er eitt heimsins stærsta fyrirtæki á sviði fjármálafíaskótiltekta)
„Íslendingar taka gagnrýni illa"
„Íslendingar taka gagnrýni illa." No sh_ _. Þessi gagnrýni kemur ekki á óvart. Þeir forréttindapésar úr gróðrarstíu íslensks viðskiptalífs, sem ég hef haft þann heiður af að kynnast - karlkyns eða kvenkyns - virðast hafa intellektúal og tilfinningalegan þroska þriggja ára barna. It's my way or the highway. Það er ekki einu sinni hægt að vera sammála um að vera ósammála. Þeir sem voga sér að hafa aðrar skoðanir á hlutunum - hvað þá að taka ákvarðanir í samræmi við þær - fá viðeigandi refsingar; þeir sem "óhlýðnast," sama hvort um er að ræða vinnufélaga eða fjölskyldumeðlimi, eru settir í samskiptafrost eða verra.
Kaldhæðnislegt er að þessir einstaklingar eru oft „fagfólk" í viðskiptalífinu - með mannaforráð og prédika um „fagleg og árangursrík" viðskipti og tjáskipti ad infinitum, en eru sjálfir kexbrjálaðir úr frekju. Ekki undarlegt að heilvita fólk vilji ekki parkera peningunum sínum á svona vitleysingahæli.
Blogg
Frekjan fælir fjárfesta
17. júlí 2012 › 03:26
Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.
