Íris Erlingsdóttir

Íris Erlingsdóttir

Íris Erlingsdóttir er fjölmiðlafræðingur og dálkahöfundur fyrir DV. Hún hefur undanfarin ár skrifað um eftirmála og áhrif – staðreyndafælni, afneitun og Stokkhólmssyndróm – bankahrunsins á íslensku þjóðina fyrir íslenska og bandaríska fjölmiðla. Íris er búsett í Bandaríkjunum.

„Aðeins tvennt er óendanlegt, alheimurinn og mannleg heimska, og ég er ekki viss um hið fyrrnefnda...“
- Albert Einstein

"Landspítala lokað næstu 13 árin til að greiða skuldir 18 útrásarvíkinga"

16. júlí 2012 › 16:15

Það hefur aldrei hvarflað að mér að hrunskrimmarnir muni upplifa eina mínútu af óþægindum fyrir að hafa rænt þjóðarauðnum undan berum rassi ráðamanna sem áttu að gæta fjárins fyrir landsmenn. Eins og ég skrifaði á Huffington Post 16. júní, 2009 Europe's Biggest Financial Swindle Since WWII: „Iceland's self-styled tycoons have parked their money in foreign bank accounts, just waiting for the market to bottom-out. Then they'll swoop in like vultures, buy up all the over-mortgaged properties from the 'nouveaux pauvres,' and strut like princes again."/"Íslensku auðjöfrarnir hafa lagt peningana inn á erlenda bankareikninga, bíða bara eftir að markaðurinn hrynji. Þá munu þeir steypa sér yfir landið eins og hrægammar, kaupa allar yfirveðsettu eignirnar af hinum 'noveaux pauvres' (nýfátæku) samlöndum sínum og spígspora á ný eins og prinsir."

434 ÞÚSUND  MILLJÓNIR AFSKRIFAÐAR fyrir ÁTJÁN EINSTAKLINGA
Ekki að það hafi kostað einhverja meiri háttar heilaleikfimi að spá því að íslensku forréttindastéttarprinsirnir - hvort sem úr hertogadæmum pólitíkur eða peninga - myndu aldrei þurfa að bera ábyrgð á gjörðum sínum (eða aðgerðaleysi). En þessi sannleikur sem DV greindi frá í síðustu viku (9.7. og 6.7.) er viðbjóðslega niðurdrepandi: „Íslensku útrásarvíkingarnir snúa aftur. Verðmætar eignir og gamlar arðgreiðslur koma sér vel."

„Afskriftakóngar Íslands" ætti að vera skyldulesning fyrir hvert einasta mannsbarn í landinu. Björgólfur Guðmundsson hefur fengið 96 milljarða afskrifaða - það eru 96 ÞÚSUND milljónir. Karl Wernersson, 90 ÞÚSUND milljónir króna. Magnús Kristinsson, 50 ÞÚSUND milljónir. Jón Ásgeir 30 ÞÚSUND milljónir króna.

HVAÐ VÆRI HÆGT AÐ GERA FYRIR PENINGANA?
Reka ALLT íslenska menntakerfið í nærri 8 ár. Reka allt íslenska heilbrigðiskerfið í 4 ár. Reka Landspítalann í 13 ár.* En hva... Kommon! Ekki vera svona neikvæð, horfa framávið! Samkvæmt íslensku stjórnspekinni er fátt sálinni hollara en valdníðsla og vænn skammtur af afneitun.

Og Íslendingar vita alltaf allt best, miklu betur en útlenskir expertar, eins og t.d. þessi bandaríski réttarlæknir (úr æviminningum hans), hver nennir að hlusta á svoleiðis:"If  you don't deal with a horrible or traumatic event, it will deal with you."

Reyndar voru fleiri samlíkingar úr þessari ævisögu sem pössuðu við Íslendinga eins og flís við rass. Um fórnarlömb eins glæpamanns: „Who marries a criminal? Who indeed would be so naive, so foolish, so desparate? Who allows such evil to live with their family?... There are no surprises here. What did they expect? The best predictor of future behavior is past behavior."

*Fjárlög 2011 - Datamarket



Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.