Íris Erlingsdóttir

Íris Erlingsdóttir

Íris Erlingsdóttir er fjölmiðlafræðingur og dálkahöfundur fyrir DV. Hún hefur undanfarin ár skrifað um eftirmála og áhrif – staðreyndafælni, afneitun og Stokkhólmssyndróm – bankahrunsins á íslensku þjóðina fyrir íslenska og bandaríska fjölmiðla. Íris er búsett í Bandaríkjunum.

„Aðeins tvennt er óendanlegt, alheimurinn og mannleg heimska, og ég er ekki viss um hið fyrrnefnda...“
- Albert Einstein

Arkitektúr "Asshole Capitalist"

10. júní 2012 › 02:13

Þegar ég ók eftir Sæbrautinni niður í miðbæ Reykjavíkur í veðurblíðunni í dag varð mér hugsað til athugasemda bandaríska blaðamannsins Michael Lewis um hinn reykvíska útrásararkitektúr sem í byggingarsögu þjóðarinnar verður þekktastur fyrir að hafa nauðgað sjávarsíðu Skúlagötunnar:

„Ofan á nokkur þykk lög af arkitektúr sem kalla mætti Norræn gagnsemishyggja er þunn slikja sem án efa verður nefnd Asshole Capitalist. Dvergvaxnar byggingar sem hýsa opinberar stofnanir Íslands eru sjarmerandi og í samræmi við borgina. Hið sama er ekki hægt að segja um glerturnana við sjávarsíðuna sem ætlað er að hýsa nýríka fjármálamenn - og í leiðinni að byrgja útsýni allra annarra yfir hvíta hamrana handan hafnarinnar."

Mikilvægasta fegrunarframkvæmd borgarinnar verður að láta rífa þessa tildurturna.  



Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.