ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.0° 4m/s NNW
Íris Erlingsdóttir

Íris Erlingsdóttir

Íris Erlingsdóttir er fjölmiðlafræðingur og dálkahöfundur fyrir DV. Hún hefur undanfarin ár skrifað um eftirmála og áhrif – staðreyndafælni, afneitun og Stokkhólmssyndróm – bankahrunsins á íslensku þjóðina fyrir íslenska og bandaríska fjölmiðla. Íris er búsett í Bandaríkjunum.

„Íris, you make Molly Ivins look like Mother Goose."
A. Baldwin

Fréttaperlur Páls

15:31 › 16. febrúar 2012

Um daginn las ég tvær fréttir um viðbrögð Páls Magnússonar, útvarpsstjóra, við drögum að lagafrumvarpi sem gerir ráð fyrir að  útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins skuli ekki gegna öðrum störfum á vettvangi stofnunarinnar. Ég get ímyndað mér spurningarnar sem fréttamennirnir lögðu fyrir Pál: „...uhh...hver eru viðbrögð þín við þessu frumvarpi...?“ Hvorug fréttanna svarar þó spurningunni sem leggja hefði átt fyrir útvarpsstjórann: „Hvers vegna lest þú sjónvarpsfréttirnar á RÚV?“

Þetta er ófær og...brosleg krókaleið að augljósu marki“ sagði Páll í viðtali við Morgunblaðið um lagafrumvarpsdrögin. „Ef vilji...ráðamanna stendur til þess...að núverandi útvarpsstjóri eigi ekki að lesa fréttir þá er miklu betra að segja það bara hreint út.“

Fráleitt og fordæmalaust
Páli líst illa á það „að banna framkvæmdastjóra í félagi að ganga í önnur störf  ef svo ber undir. Það er fráleit staða og á sér örugglega engin fordæmi.“  

Þessi ummæli Páls kalla á nokkrar athugasemdir. „Ef svo ber undir“...? Ef t.d. svo ber undir að sjónvarpsfréttaþulirnir – starfsfólk fréttastofunnar – sem ráðnir voru til að vera sjónvarpsfréttaþulir eru með ælupest og allir á fréttastofunni eru lesblindir, jú, kannski þá.

Páll er heldur ekki „framkvæmdastjóri“ í venjulegu félagi/fyrirtæki; ríkisútvarpið er ekki einkafyrirtæki og starfsmenn þess - líka útvarpsstjórinn - verða að gegna þeim lögum og reglum sem um stofnunina gilda. RÚV er ekki skóverslun, þar sem verslunarstjórinn getur gengið í að vera á kassanum ef nauðsyn krefst og afgreiðslumaðurinn getur séð um að panta vörur ef stjórinn er í fríi.

Það eina sem í raun er „ófært,“ „fráleitt og fordæmalaust“ er að útvarpsstjórinn skuli yfir höfuð vera að lesa sjónvarpsfréttirnar – að sinna starfi innan deildar sem hann ekki starfar í og sem starfsmenn deildarinnar eru fullkomlega færir um að sinna. Það er „fráleit staða,“ sem „á sér örugglega engin fordæmi,“ eins og Páll sjálfur hlýtur að vita.

Fordæmalaust í raun: forstjórafréttalestur
Forstjóri NBC Universal, Steve Burk, hefur aldrei lesið sjónvarpsfréttir samhliða forstjóradjobbinu, né hefur yfirmaður fréttadeildar NBC, Steve Capus, talið nauðsynlegt að hann læsi fréttirnar. Ekki heldur Leslie Moonves, forstjóri CBS  né yfirmaður fréttadeildar CBS, David Rhodes. Forstjóri BBC, Mark Thompson, fæst ekki við sjónvarpsfréttalestur og hinu sama gegnir um forstjóra CNN, Ken Jautz.

Ég hef unnið á fréttastofum í mörg ár og get ekki ímyndað mér að þetta fyrirkomulag skapi þægilegan vinnuanda. Varla leggst vel í yfirmenn og starfsmenn að forstjórinn ákveði sisvona að taka að sér eitt eftirsóttasta starf innan ákveðinnar deildar.

En hvers vegna er útvarpsstjórinn yfirleitt að lesa sjónvarpsfréttirnar? Bað fréttastjórinn, Óðinn Jónsson, Pál að lesa fréttirnar vegna þess að enginn starfsmanna fréttastofunnar var fær um að lesa hátt og skýrt, með traustvekjandi og sjarmerandi svip, af telepromternum (Réði Óðinn Pál sem sjónvarpsfréttaþul eða réði Páll sig sjálfan í starfið?) Telja Óðinn og Páll starfsfólk fréttastofunnar vera óhæfa fréttalesara?

Draumur narcissistans
Nei, meðal starfsfólks fréttastofunnar eru áreiðanlega ágætir fréttalesarar. Mig grunar hins vegar að Páll lesi sjónvarpsfréttirnar af sömu (kannski „broslegu“) ástæðum og starf sjónvarpsfréttaþula er eftirsótt – vegna þess að starfinu fylgir ákveðin upphefð og gravitas (enda heyrir maður Pál ekki lesa útvarpsfréttirnar í hádeginu).

Að gegna starfi sjónvarpsfréttaþuls er draumur narcissistans. Allir þekkja þig úti á götu og stara á þig aðdáunar- og öfundaraugum. Allar dyr standa þér opnar. Þú færð narcissistafix oft á dag. Aðdráttarafl þitt hundraðfaldast – fólk sem ekki myndi líta við þér ef þú værir meindýraeyðir eða málmiðnaðarmaður finnst þú ómótstæðilegur. Mmmm... Algjör „power trip.“ Í stuttu máli, útvarpsstjóri er einhver kall sem flytur sjónvarpserindi á Nýársdag eða vattever en sjónvarpsfréttalesarar eru stjörnur.

Tímabært að lækka laun útvarpsstjóra?
Hefur Páll virkilega ekki nóg að gera við að stýra þessari stofnun? Maður skyldi ætla að stjórnun Ríkisútvarpsins, þar sem starfa um 350 manns, væri fullt starf og gott vel. Gagnrýnisraddir hafa oft verið uppi um há laun og fríðindi útvarpsstjórans, en ef til vill er tímabært sé að lækka laun hans, þar sem ekki virðist vera um fullt starf að ræða. Nú, og ef Páll vill endilega lesa fréttir getur hann einfaldlega sótt um vinnu á fréttastofunni.

Páll segir það mikla "blessun að svona ákvæði" - sem banna útvarpsstjóranum að velja sér eftirsótt störf í sínum uppáhaldsdeildum - "...hafi ekki áður verið í gildi... þá hefðum við misst af mörgum perlum, t.d. ljóðalestri Andrésar Björnssonar..." 

O jæja... Landsmenn verða bara að láta sig hafa það að fréttaperlur Páls hverfi  af skjánum. ■.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?