Á þessum tveimur áratugum sem ég hef búið í USA hef ég alltaf haft augun opin fyrir hagstæðum símadæmum – hver býður upp á ódýrustu símtölin heim til Íslands.
Skype var fínt – og frítt ef sá sem maður hringir í er líka Skypandi á hinum endanum, en svo er ekki alltaf.
Skömmu fyrir jólin stofnaði ég reikning á amivox.is. Enginn – enginn – kemst með tærnar þar sem þetta íslenska fyrirtæki hefur hælana varðandi símareikninginn (og gæði, ekkert bergmál eða „delays“). Ég opnaði reikninginn með $20 (ca 2500 ISK, held ég) og síðan þá er ég örugglega búin að tala til Íslands (og Noregs og Frakklands) í nær heilan sólarhring samtals! Ég á enn eftir $7 á reikningnum!
Ég ráðlegg öllum sem þurfa að hringja mikið til útlanda að prófa þessa þjónustu. Maður stofnar reikninginn með gemsanúmeri. Kerfið virkar eins og símadömudæmið frá í gamla daga... Velur númerið af númeraboxinu á amivox vefsíðunni; nokkrum sekúndum síðar hringir kerfið í þig þegar búið er að ná í númerið á hinum endanum - og þú getur valið hvort kerfið hringir í heimasímann þinn eða farsímann, eða hvaða númer sem er, t.d. ef maður er að hringja frá hóteli er ekkert mál að láta kerfið hringja þangað - og tengir þig við hinn endann. Fleiri fítusar eru í þessu kerfi sem ég hef ekki lært á, en mér hefur meira en dugað að láta það bara hringja í gömlu landlínuna.
Besta símakerfið sem völ er á.



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
