ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S
Ingi Freyr Vilhjálmsson

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Ingi F. Vilhjálmsson hefur verið blaðamaður á DV frá því í desember 2008. Þar áður hafði hann unnið á Fréttablaðinu á árunum 2004-2007. Hann er með BA-gráður í sagnfræði og heimspeki frá Háskóla Íslands og mastersgráðu í heimspeki frá háskólanum í St. Andrews í Skotlandi.

„Monkey“

10:57 › 29. september 2009

Fyrir skömmu heyrði ég nokkuð magnaða frásögn af því þegar bankamaður sagði sögu af manni sem honum fannst hegða sér einkennilega, jafnvel fyrirlitlega, þó hægt væri að hlæja að hegðun hans.

Sagan var á þá leið, samkvæmt bankamanninum, að maðurinn var á leiðinni til útlanda með konu sinni og tveimur börnum og flugu þau frá Keflavíkurflugvelli. Í staðinn fyrir að vera með konu sinni og börnum á almennu farrými var maðurinn hins vegar einn á Saga Class. Ekki fylgdi með skýring á því af hverju maðurinn ákvað að gera þetta - kannski var einhver mjög góð skýring á því.

Áhugaverðasti hluti sögunnar af manninum í meðförum bankamannsins var hins vegar ekki sú staðreynd að maðurinn hafi ferðast á Saga Class en ekki fjölskylda hans. Vissulega er það forvitnileg saga því það hljómar einkennilega í eyrum flestra að fjölskyldufaðir láti ekki það sama yfir sig ganga og yfir fjölskyldu sína, hver svo sem ástæðan fyrir því var. 

Nei, áhugaverðasti hluti sögunnar, eins og ég heyrði hana, var hvernig bankamaðurinn talaði um almennt farrými í flugvélum. Hann kallaði það „monkey“: Að maðurinn hafi látið fjölskylduna sína vera á „monkey“ á meðan hann var á Saga Class. Í þessari skilgreiningu felst að þeir sem fljúga á almennu farrými séu á einhvern hátt óæðri verur en þeir sem ferðast á Saga Class; verur sem kannski eru líkari skepnum, öpum, en mönnum.

Skilgreiningin varpar kannski frekara ljósi á það sem stundum hefur verið sagt um samfélagsþróunina á Íslandi góðærisins vegna þeirrar misskiptingar auðs sem því fylgdi; að í reynd hafi orðið til tvær þjóðir í landinu: Efnafólkið og svo hinir. Mis- og stéttaskiptingin birtist svo í því að mennirnir sem flugu á Saga Class töluðu um „apana“ sem gerðu það ekki.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.