ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.0° 4m/s NNW
Hundasteinar

Hundasteinar

Fagsvið mitt er stjórnun, heiti Egill Jóhannsson, er forstjóri Brimborgar en bloggskrifin eru á minni ábyrgð. Kvæntur og tveggja barna faðir. Ég hef sérstakan áhuga á því sem snýst hægt. Og snúa því í gang. Stjórnun breytinga. En bílar, nýsköpun, viðskipti, stjórnun, efnahagsmál, fjallgöngur, ljósmyndun, heimsfræði og heimspekileg málefni allskonar eru einnig í uppáhaldi. Athugasemdir og leiðbeiningar frá öðrum eru mjög vel þegnar.


  • Fjórar veislur og Frakklandsför

    19. apríl 2012

    Fjórar veislur og Frakklandsför, stuðlar eins fræg kvikmynd :), hafa reynt á kúrinn enda víða freistingar þegar farið er á árshátíð, í þrjár fermingarveislur og vikufrí til Frakkalands. Það viðurkennist hér með að ég féll fyrir þeim flestum og einhver kíló komu til baka.


    Það er því ekkert sem heitir annað en að koma sér á beinu brautina aftur en fyrir ekki svo löngu síðan var ég búinn að losa mig við 12,1 kg. og kominn í 80,55 kg. en Árbæjarlaugarvigtin upplýsti í kvöld að staðan væri 81,35.


    Matarræðið í þessari viku er aftur komið á gott ról og aftur komin regla á ræktina, sundið og göngutúrana í Elliðaárdalnum. Býst við að vera kominn aftur í fyrrgreinda tölu eftir helgi (og nokkrar fjallgöngur).

    Skrifa athugasemd

  • Jákvæð tákn

    2. apríl 2012

    Mjög ánægjuleg þróun er að verða varðandi fjölgun ferðamanna á Íslandi utan háannatíma. Í fréttum í dag kom fram að fjöldi ferðamanna hefur aldrei verið meiri í mars og áður hefur komið fram að góð traffík hafi verið í janúar og febrúar. Svo virðist sem norðurljósaferðir séu orðnar mjög vinsælar þó ýmislegt sé óunnið á þeim vettvangi miðað við Norðmenn og Finna.


    Þetta gæti skýrt aðra frétt en umferð um vegi landsins jókst núna annan mánuðinn í röð eftir stöðugan samdrátt frá hruni. Fjöldi ferðamanna leigir bíla til að skoða landið og upplifa norðurljósin. Við hjá Thrifty Car Rental Iceland bílaleigunni höfum upplifað mikinn vöxt í bókunum erlendra ferðamanna í fyrra og ekki síður á þessu ári og passar það við fréttir sem berast úr ferðabransanum.


    Aukning ferðamanna utan háannar er gríðarlega mikilvæg og mun verðmætari en ef allir kæmu yfir sumarið. Þá nýtist fjárfesting mun betur í innviðum ferðaþjónustunnar og nýting flugvéla, hótela, bílaleigubíla, veitingastaða og rútuflota svo fátt eitt sé nefnt batnar og arðsemi eykst.


    Þetta er mikil lyftistöng fyrir efnahagslífið og kannski má rekja aukin umsvif í sölu nýrra bíla í mars til aukinna tekna og bjartsýni í ferðaþjónustu þó ljóst sé að gott gengi í sjávarútvegi spilar stóra rullu. Sala nýrra bíla í mars jókst um 108% í síðasta mánuði sem meðal annars má rekja til þess að bílaleigur hafa verið að kaupa nýja bíla í miklum mæli til að leigja til erlendra ferðamanna en ekki síður til aukinna kaupa heimila og fyrirtækja á nýjum bílum.


    Það eru því jákvæð tákn á lofti nú þegar rúm þrjú ár eru liðin frá hruni og hef ég trú á að komandi ferðasumar eigi eftir að verða gott og styrkja efnahag Íslands enn betur, fjölga störfum og draga úr atvinnuleysi.

    Skrifa athugasemd

  • Tveggja stafa tala

    1. apríl 2012

    Nýja mataræðið heldur áfram að sanna sig og skv. vigtinni í Árbæjarlauginni núna í morgun þá eru farin 12,1 kg. síðan 9 janúar 2012 eða á 12 vikum. Staðan er því 80,55 kg. og styttist í markmiðið en stefnt er að vigtin sýni 77,2 kg. fyrir vorið.


    Ég fylgi bók Kolbrúnar grasalæknis, Betri næring, Betra líf og er galdurinn að sleppa sykri (gosdrykkjum, sælgæti, ávöxtum, o.s.frv.), sleppa öllu brauði, mjólkurvörum og kaffi (stelst þó í koffínlausan soja cappuchino regulega) en allt kjöt er leyfilegt og auðvitað nóg af grænmeti. Að auki regluleg hreyfing 2-3 sinnum í viku t.d. göngutúr, ræktin og sund í ca. 60-90 mínútur.


    Það er magnað að maður finnur ekkert til svengdar og hefur þar mikið að segja eitt linsoðið egg og ofurdrykkurinn sem ég drekk á hverjum morgni. Hann er búinn til úr ýmsu góðgæti eins og sellerí, avokato, bláberjum, engifer, gúrrku og kúrbít blandað saman með vatni og safa úr hálfu lime og smá dashi af hörfræolíu.


    Niðurstaða þessarar tilraunar er sú að mataræðið skiptir að mínu mati ca. 80%.

    Skrifa athugasemd

  • Bílasala í mars eykst um 107%

    31. mars 2012

    Umferðastofa hefur birt skráningartölur yfir nýja bíla í mars. Mikill viðsnúningur hefur orðið í sölu nýrra bíla og jókst salan frá mars í fyrra um 107%. Þokkalegur vöxtur það og ekki skemmir fyrir að Ford er annað stærsta bílamerkið. :) Þó er rétt að minna á að bílasala á Íslandi hefur verið í sögulegu lágmarki undanfarin ár og því verður prósentuvöxturinn mikill. Ennþá er bílasala 30% undir ársmeðaltali síðustu 40 ára.


    Efnahagslífið er augljóslega að taka við sér en sala nýrra bíla er mjög góður mælikvarði. Heimili og fyrirtæki draga mjög fljótt úr bílakaupum þegar harðnar í ári enda auðveldara að fresta bílakaupum en mörgu öðru. Efnahagsbatinn þarf síðan að vera kominn nokkuð vel af stað svo traust fyrrgreinda aðila sé nægjanlegt til þess að fjárfesta í nýju ökutæki. Það traust virðist komið núna.


    Rétt er að benda á að hluti vaxtarins er vegna kaupa bílaleiga á nýjum bílum en þær tölur liggja ekki nákvæmlega fyrir þegar þetta er skrifað. En það eru líka góðar fréttir því það þýðir að bílaleigurnar búast við auknum fjölda ferðamanna til landsins sem er gott fyrir efnahag Íslands.

    Skrifa athugasemd

  • Álag á Flugstöð Leifs Eiríkssonar

    27. mars 2012

    Fjöldi flugfélaga sem flýgur til Íslands hefur aldrei verið meiri og farþegum fjölgar stöðugt. Allt að 15000 farþegar fara um flugstöðina á dag þegar mest er og Ísavía hefur tilkynnt um fjárfestingar til að anna eftirspurn. En er hægt að bæta nýtingu vallarins með núverandi aðstöðu?


    Ég er auðvitað ekki sérfræðingur á þessu sviði en hef stundum velt fyrir mér hvers vegna flugstöðin stýrir ekki fjölda flugfélaga með mismunandi lendingargjöldum eftir árstíðum og lendinga innan dagsins. Hvers vegna lenda allar vélar á sama tíma?


    Átakið "Ísland allt árið" var stofnað með það að markmiði að fjölga erlendum ferðamönnum utan háannatíma. Þetta er mikilvægt því Íslendingar vilja auka arðsemi af ferðaþjónustu og nýta undursamlega náttúru Íslands á sem bestan hátt. Það er best gert með því að að dreifa álaginu og nýta þannig betur þá fjárfestingu sem þegar er til staðar hjá gisti- og veitingastöðum, bílaleigum, flugfélögum og ekki síður flugstöðinni.


    Almennt í hvaða atvinnugrein sem er þá er best að stýra eftirspurn í gegnum verðlagningu. Ferðaþjónustan hefur gert þetta vel í gegnum tíðina þar sem ódýrara er að ferðast til Íslands utan háannatíma.


    Nú fjölgar flugfélögum sem hingað vilja fljúga en flest þeirra fljúga aðeins á háönn en örfá allt árið um kring. Það er ekki þjóðhagslega hagkvæmt, og ekki í samræmi við markmið átaksins "Ísland allt árið", ef við þurfum að leggja milljarða í fjárfestingar í stækkun á flugstöðinni til að taka á móti fleiri flugfélögum nema þau fljúgi EINNIG utan háannatíma. Því velti ég fyrir mér hvort hægt væri að stýra þessu betur í gegnum lægri lendingargjöld á lágönn.


    Við skoðun mína á gjaldskrá Isavia yfir kostnað flugrekenda við að lenda flugvélum sínum á Keflavíkurflugvelli kemur í ljós að gjaldskráin er sú sama allan ársins hring og innan dagsins og því virðist verð ekki vera notað til að dreifa álagi milli árstíða.


    Með mismunandi lendingargjöldum eftir árstíðum væri hægt að ná fjölda markmiða m.a. 1) auka heildartekjur Leifsstöðvar, 2) draga úr álagi á Leifsstöð á háönn og þannig draga úr rekstrarkostnaði, 3) auka ánægju farþega, 4) auka flugtíðni utan háannar Íslendingum til hagsbóta 4) og bæta nýtingu fjárfestingar almennt í ferðaþjónustu utan háannar.


    Bara hugmynd.

    Skrifa athugasemd

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?