Hlöðuveggur

Hlöðuveggur

Hjörtur Hjartarson hefur gagnrýnt íslenska valdhafa og stjórnmálastétt opinberlega um langt árabil, bæði í orði og verki. Yfirleitt málefnalega og alltaf hiklaust. Hann er sannfærður um að landsmenn muni gera það sem gera þarf til að endurnýja samfélag sitt á nýjum og heilbrigðum grunni. Í því felst afdráttarlaust uppgjör við hrunið og að Íslendingar semji sér eigin stjórnarskrá.

Spillingin er í Iðnó – vertu með

18. september 2012 › 11:49

Ég mæli með borgarafundi Stjórnarskrárfélagsins í Iðnó í kvöld 19. september kl. 20.


Sumir meina að það sé að rofa til í efnahagslífi landsins, aðrir að svo sé ekki. Ef við gæfum okkur að efnahagslífið sé að braggast, hefðum við þar með komist yfir Hrunið?  Líklega myndu flestir þvertaka fyrir að svo væri.


Þótt skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis sé ekki lengur á allra vörum, þá er hún heldur ekki gleymd, eins og einhverjir vonuðu að myndi gerast á tveimur árum eða svo. Vitundin um að íslenskt samfélag sé í meira lagi brogað er almenn og sterk. Við höfum glatað sakleysinu, sem betur fer, sakleysinu sem var alls ekki svo saklaust. 


Okkur nægir ekki að einblína á hagvísa. Við verðum að takast á við spillinguna sem er undirrót Hrunsins. Við verðum að koma okkur upp siðvísum. Óbreytt ástand er hættulegt. Spilling felur í sér óréttlæti og er alltaf ávísun á vanhæfni og fúsk. Hér þurfa að verða breytingar, við verðum að gera betur en að tjasla því gamla saman og hökta áfram að næsta hruni.


Við þurfum að leggja grunn að heilbrigðara samfélagi, heilbrigðari stjórnsýslu og stjórnmálum. Á borgarafundi Stjórnarskrárfélagsins í Iðnó annað kvöld verður reynt að svara því hvort ný stjórnarskrá – eins og hún liggur fyrir í frumvarpinu sem kosið verður um í þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október -  geti orðið sá grunnur.


Yfirskrift fundarins er:


„Stjórnmálaspilling og nýja stjórnarskráin – Getur ný stjórnarskrá spornað gegn spillingu í stjórnmálum og stjórnsýslu?“


Til að svara hinni kýjandi spurningu hefur Stjórnarskrárfélagið fengið valinkunnugt fólk, þau:



  • Guðlaugu Kristjánsdóttir, formann BHM

  • Inga Frey Vilhjálmsson, blaðamann og fréttastjóra DV

  • Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttir, stjórnsýslufræðing

  • Þorvald Gylfason, hagfræðiprófessor

  • Margréti Tryggvadóttir, alþingismann


Fundurinn í Iðnó hefst kl. 20. Þórir Baldursson leikur á Hammond-orgel meðan gestir koma sér fyrir.


Allir velkomnir!


Fundurinn á facebook >>



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.