Alþingi kvað upp úr með eina og aðeins eina dagsetningu í þingsályktun 24. maí. Sú dagsetning er 20. október. Það er kjördagur. Þann dag munu almennir kjósendur fá tækifæri til þess að segja álit sitt á frumvarpi Stjórnlagaráðs að nýrri og endurskoðaðri stjórnarskrá.
Alþingi hefði, samkvæmt ályktuninni, getað ákveðið að þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram fyrir þann tíma, en gerði það ekki. Því gildir 20. október. Innanríkisráðherra er ekkert að vanbúðnaði að hefja undirbúning atkvæðagreiðslunnar.
Gamla klíkuverkið sem þykjast eiga landið og miðin leggur sig í framkróka (og laga) við að kæfa rödd kjósenda og eyðileggja stjórnarskrármálið. Þjóðleg lagatækni ofar lýðræði, að gamalli venju. Það var fyrirsjáanlegt. - You ain't seen nothing yet.
