Hlöðuveggur

Hlöðuveggur

Hjörtur Hjartarson hefur gagnrýnt íslenska valdhafa og stjórnmálastétt opinberlega um langt árabil, bæði í orði og verki. Yfirleitt málefnalega og alltaf hiklaust. Hann er sannfærður um að landsmenn muni gera það sem gera þarf til að endurnýja samfélag sitt á nýjum og heilbrigðum grunni. Í því felst afdráttarlaust uppgjör við hrunið og að Íslendingar semji sér eigin stjórnarskrá.

Stöðvið ofbeldið

18. maí 2012 › 12:26

Óskaplega gengur þingmönnum illa losa sjálfa sig og Alþingi undan inngrónum valdhroka Sjálfstæðisflokksins. Eru þeir hræddir? Hefur áratuga kverkatak flokksins á íslensku samfélagi (með víðtækum persónunjósnum, berufsverbot og alles) skilið eftir sig slík ónot í sálarlífi manna? 


Almenningur á Íslandi herti upp hugann í byrjun árs 2009 og hrakti ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins frá völdum, eftir að landið hafði verið keyrt í fjárhagslegt þrot þannig að það átti allt undir náð og miskunn annarra ríkja komið. Í alþingiskosningum, sem fylgdu í kjölfarið, viku kjósendur flokknum síðan til hliðar. (Þetta var áður en skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis afhjúpaði subbuskapinn fyrir alvöru, og fjárhagslegt hrun varð að pólitísku og siðferðilegu hruni einnig.)


Af þessu getur meiri hluti Alþingis óhræddur dregið þá ályktun að Sjálfstæðisflokkurinn á ekki að ráða för í þinginu, og alls ekki í eftirhrunsmálum sem varða þjóðina mestu, eins og stjórnarskrármálinu. Flokkurinn sem afneitar bæði fortíð sinni og ábyrgð. Þaðan af síður á örfáum þingmönnum flokksins að líðast að gera Alþingi óstarfhæft með málþófi og koma ítrekað í veg fyrir að vilji meiri hluta þingsins og yfirgnæfandi meiri hluta landsmanna nái fram að ganga. Það er ofbeldi.


Meiri hluti Alþingis og forseti þess þurfa að herða upp hugann og stöðva ofbeldið, koma þingi og þjóð til varnar. Vanræki forsetinn, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, skyldur sínar við þingið ber þingmönnum að grípa inn í, samkvæmt 64. gr. þingskaparlaga.


Koma þarf í veg fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn dragi Alþingi lengra niður í svaðið til sín.


P. S.


Ég skora á fólk að fara á þingpalla til að sjá og heyra milliliðalaust hve lágt er lagst í málþófinu. Sannreynið orð mín um ofbeldi.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.