Sumardagurinn fyrsti. Fallegasti dagur ársins. Megi nú vora fyrir alvöru í þjóðlífi okkar og samfélagi.
Vonir mínar eru bundnar við nýja stjórnarskrá og heiðarlegt uppgjör við hrunið. Lagalegt, pólitískt og siðferðilegt uppgjör, án undansláttar og án illsku og heiftar. Reiði er eðlileg en vonleysi má ekki ná yfirhöndinni. Sennilega eigum við langa leið fyrir höndum en höfum enga haldbæra eða siðlega ástæðu til þess að gefast upp.
Við þurfum ekki að sigra heiminn. Við skulum keppa að því að byggja upp réttlátt, sanngjarnt og lýðræðislegt samfélag á Íslandi. Til þess þurfum við að vera óhrædd við að breyta, ýta einarðlega hinu gamla og rótfúna til hliðar og byggja nýtt.
Og hugsa. Enginn ætti að læsa sig aftan í rassinn málstað eða flokki og láta draga sig meðvitundarlausan um holt og móa. Kúgun og ofríki þrífast á ótta.
Verum óhrædd. Okkur er áskapað að ganga upprétt. Segjum það sem okkur býr í brjósti.
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga, sæta langa sumardaga.
Gleðilegt sumar :)
