Stór orð hafa fallið í sambandi við hugmyndir um utanþingsstjórn. Sumir nota jafnvel orðið fasismi. Það er tóm tjara. Ekki vil ég heldur nota það orð þegar ég heyri talað um þjóðstjórn. Hins vegar hugnast mér þjóðstjórn ekki. Fyrst og fremst vegna þess að hún mun aðeins magna og espa vantraust landsmanna í garð stjórnmála og ríkisvaldsins. Íslenskir stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar eru í of veikri stöðu til þess að færa almenningi vondar fréttir. Það er vandamálið.
Meðal annarra orða, yrðu Þorgerður Katrín eða Guðlaugur Þór ráðherrar í þjóðstjórn? Eða Bjarni Benediktsson?
Það ræður líka afstöðu minni til þjóðstjórnar að ég hef ýmislegt séð til Flokksins með fjögur andlit. Það er rangt að tala um fasisma, en valdaeinokun er viðeigandi. Valdníðsla líka.
Ég var að gramsa í gömlum tölvupóstum og rakst á bréf sem ég setti saman fyrir framboð Borgarahreyfingarinnar. Þetta var rétt fyrir kosningarnar í apríl á síðasta ári.
Staðið hafði til að Sjónvarpið gæfi öllum framboðum kost á tíu mínútna kynningu. Ekki auglýsingu. Horfið var frá því vegna þess að flokkarnir sem taka sér tvö þúsund milljónir á kjörtímabili úr almannasjóðum og nota til að viðhalda valdaeinokun sinni, þeir afþökkuðu kynninguna. Ekki allir, heldur nógu margir til þess að Sjónvarpið gæti afsakað sig frá málinu. Fjórir fræknu kusu heldur að kaupa sér auglýsingar en notfæra sér ókeypis málefnalega kynningu, gagngert til þess að kæfa rödd nýs framboðs, boðflennunnar í sölum valdsins.
Þjóðstjórn? Nei takk.
Eftirfarandi bréf skrifaði ég af ofangreindu tilefni. Bréfið var sent til útvarpsstjóra og menntamálaráðherra, undirritað af þáverandi framkvæmdastjóra Borgarahreyfingarinnar, Jóni Þór Ólafssyni.
"Ríkisútvarpið, Reykjavík 7. apríl 2009
b.t. útvarpsstjóra, Páls Magnússonar,
Efstaleiti 1,
150 Reykjavík.
Efni: Skert framlag Ríkisútvarpsins ohf. til kynningar á nýjum framboðum til Alþingis.
Ágæti útvarpsstjóri.
Fyrr í dag bárust Borgarahreyfingunni skilaboð um að Ríkisútvarpið Sjónvarp hygðist ekki senda út gjaldfrjálst 10 mínútna kynningarþátt framboðsins eins og til stóð. Borgarahreyfingin mótmælir þeirri ákvörðun harðlega og fer fram á við Ríkisútvarpið, í nafni lýðræðis og í nafni almannaútvarps, að framboðið fái að kynna landsmönnum stefnumál sín.
Ákvörðun Ríkisútvarpsins er ólýðræðisleg. Borgarahreyfingin - þjóðin á þing er nýtt framboð sem býður fram lista í öllum kjördæmum í komandi alþingiskosningum 25. apríl. Fólk um allt land á rétt á að kynnast stefnumálum framboðsins í sínum eigin fjölmiðli. Ekki aðeins út frá almennum lýðræðissjónarmiðum heldur lagalegu hlutverki og skyldum Ríkisútvarpsins ohf.
Rök Ríkisútvarpsins fyrir því að hætta við 10 mínútna gjaldfrjálsa útsendingu eru einnig ólýðræðisleg. Ríkisútvarpið hætti við gjaldfrjálsa útsendingu vegna þess að meirihluti stjórnmálaflokkanna vildi ekki notfæra sér útsendinguna. Þeir flokkar sem sitja á Alþingi og hafa veitt sjálfum sér rausnarlega úr sjóðum almennings geta með öðrum orðum afþakkað gjaldfrjálsa útsendingu fyrir eigin framboð og um leið komið í veg fyrir gjaldfrjálsa kynningu annarra framboða, nýrra framboða sem ekki hafa í neina sjóði að ganga til að kynna stefnumál sín.
Það er fullkomlega óboðlegt í samfélagi sem vill kenna sig við lýðræði að rótgrónir stjórnmálaflokkar, sem landsmenn vita vel hvað standa fyrir, geti keypt sér alla þá auglýsingu sem þá lystir og um leið komið í veg fyrir að raddir nýrra framboða heyrist.
Borgarahreyfingin krefst þess að þau framboð sem vilja fái umræddan 10 mínútna útsendingartíma gjaldfrjálst til kynningar á stefnumálum sínum í sjónvarpi allra landsmanna, eins og til stóð.
Virðingarfyllst, ... ."



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
