ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.2° 5m/s ESE
Hlöðuveggur

Hlöðuveggur

Hjörtur Hjartarson hefur gagnrýnt íslenska valdhafa og stjórnmálastétt opinberlega um langt árabil, bæði í orði og verki. Yfirleitt málefnalega og alltaf hiklaust. Hann er sannfærður um að landsmenn muni gera það sem gera þarf til að endurnýja samfélag sitt á nýjum og heilbrigðum grunni. Í því felst afdráttarlaust uppgjör við hrunið og að Íslendingar semji sér eigin stjórnarskrá.

Þessa kýs ég en ekki þessa

12:02 › 25. nóvember 2010

Ég mun ekki kjósa vini mína á stjórnlagaþing. Vinátta, ein og sér, dugar mér ekki. Alls ekki. 

Ég mun heldur ekki kjósa þá sem ekkert bitastætt leggja fram nema rándýrar auglýsingar. Peningar og stjórnmál eru eitruð blanda og ávísun á sérhagsmunagæslu. 

Ekki heldur mun ég kjósa þá sem ætla að endurvinna fjölmiðlafrægð sína fyrir stjórnlagaþingið og láta þar við sitja. 

Rousseau hélt því fram að löggjafarvaldið tilheyrði almenningi og engum öðrum og að allar aðgerðir framkvæmdavaldsins væru, eða ættu að vera, lög. Þessar staðhæfingar hvíla á þeirri forsendu Rousseaus að fullveldið verði hvorki framselt né því skipt upp og að fullveldið sé aðeins framkvæmd almannaviljans. Hann gaf ekkert fyrir það sem við nefnum fulltrúalýðræði.

Við höfum fyrir löngu samþykkt fulltrúalýðræði sem aðferð til að ná fram eiginlegu lýðræði, og stjórnlagaþingið verður fulltrúasamkoma. Samt ættum við að huga að hugmyndum Rousseaus um almannaviljann.

Almannavilji Rousseaus er ekki það sem hver og einn vill útaf fyrir sig. Almannavilji tekur mið af sameiginlegum hagsmunum en vilji hvers einstaklings tekur mið af einkahagsmunum.

Flokkadrættir og sérhagsmunir spilla fyrir því að almannaviljinn nái fram að ganga: 

„Til þess að tjáning almannaviljans komist vel til skila er því mikilvægt að ekki sé til sérstakt samfélag innan ríkisins og að sérhver borgari taki ákvarðanir eftir sannfæringu sinni.“ 

Kenning heimspekingsins John Rawls um réttlæti á sér skíra samsvörun í þessari hugmynd Rousseaus, þar sem hver einstaklingur tekur afstöðu án þess að vita nokkuð um hverjir einkahagsmunir hans séu. Þannig myndu svonefndir kvótagreifar t.d. greiða atkvæði um kvótakerfið án þess að hafa hugmynd um að þeir ættu kvóta. Rawls talar um að greiða atkvæði bakvið tjald fávísi (e. veil of ignorance).

Á laugardag þurfum við öll að verða ábyrgir borgarar og hefja okkur yfir litla hégómlega egóið, sem sífellt gáir búralega að sérhagsmunum sínum. Á laugardag ber okkur að kjósa þau sem við í einlægni höfum trú á að muni hafa almannahagsmuni að leiðarljósi á stjórnlagaþinginu, og ekkert annað. 

Leggjum dálítið á okkur til þess að finna fulltrúa á stjórnlagaþingið. Það er mikilvægt fyrir farsæld okkar sjálfra og þeirra sem munu þurfa að taka við íslensku samfélagi úr okkar höndum. 

Hjörtur Hjartarson er í framboði til stjórnlagaþings. Nánari upplýsingar hér hér >>

Áherslumálin á einni síðu finnur þú hér >>





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.