ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.2° 5m/s ESE
Hlöðuveggur

Hlöðuveggur

Hjörtur Hjartarson hefur gagnrýnt íslenska valdhafa og stjórnmálastétt opinberlega um langt árabil, bæði í orði og verki. Yfirleitt málefnalega og alltaf hiklaust. Hann er sannfærður um að landsmenn muni gera það sem gera þarf til að endurnýja samfélag sitt á nýjum og heilbrigðum grunni. Í því felst afdráttarlaust uppgjör við hrunið og að Íslendingar semji sér eigin stjórnarskrá.

Fyrsta setning nýrrar stjórnarskrár

10:13 › 1. nóvember 2010

Ég spurði um daginn hver inngangsorð nýrrar stjórnarskrár ættu að vera. Til þess að fá fólk af stað nefndi ég dæmi um inngangsorð úr stjórnarskrám nokkurra ríkja. Fáir lögðu fram tillögur.

Sjálfur kom ég ekki með tillögu að inngangsorðum. Hins vegar gæti ég hugsað mér að fyrsta setning nýrrar stjórnarskrár verði þessi:

Sérhverjum íslenskum manni ber að þekkja, virða og verja þessa stjórnarskrá.


Greinargerð:

Með íslenskum manni er átt við fullveðja íslenskan ríkisborgara. 

Innleiðing nýrrar stjórnarskrár felur ekki aðeins í sér lagalegan gjörning. Að þekkja stjórnarskrá ríkisins á að vera hluti almennrar menntunar hvers borgara. Sýna þarf nýrri stjórnarskrá meiri virðingu, að þessu leyti, en núgildandi stjórnarskrá.

Að sérhverjum íslenskum manni beri að virða stjórnarskrána felur í sér, að engum sé heimilt að ganga gegn eða brjóta ákvæði stjórnarskrárinnar.

Að sérhverjum íslenskum manni beri að verja stjórnarskrána felur í sér, að honum beri að koma stjórnarskránni til varnar ef hún er brotin.


Kynning á frambjóðanda 3 3 0 4



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.